Um okkur
Græna Ljósið

BETRA BÍÓ Á ÍSLANDI

ÓHÁÐAR GÆÐAMYNDIR FRÁ ÖLLUM HEIMSHORNUM

janúar 09. 2007

Græna ljósið er eini aðilinn á Íslandi sem sérhæfir sig í dreifingu óháðra og listrænni mynda.

Markmið Græna ljóssins er að bæta við kvikmyndaflóruna hérlendis, skemmta fólki um leið og það stuðlar að umræðu um ýmiss málefni.

Mikil áhersla verður lögð á öfluga og lifandi heimasíðu, þar sem fólk mun geta fundið allar upplýsingar um dagskrá Græna ljóssins og væntanlegar kvikmyndir.

Þeir sem skrá sig á póstlista Græna ljóssins verða partur af kvikmyndasamfélagi okkar og bjóðast ótal tilboð og tækifæri sem engum öðrum mun standa til boða. Til að mynda verður þeim boðið á forsýningar eða frumsýningar mynda Græna ljóssins við hvert tækifæri og hafa algjöran forgang á alla atburði.

Aðalheimili Græna ljóssins er í Háskólabíói og DVD heimili Græna ljóssins er í verslunum Skífunnar. Við mælum sérstaklega með Videohöllinni í Lágmúla og flestar okkar myndir eru fáanlegar á báðum VOD leigum landsins; Skjásins og Vodafone.

Senda grein


Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig


Þetta vefsvæði byggir á Eplica