Væntanlegt

IRON SKY

Frumsýnd 13. apríl í Háskólabíói og Bíó Paradís

Hér er á ferðinni kolsvort kómedía sem hefur nú þegar vakið mikla eftirvæntingu um allan heim. Myndin var að hluta til fjármögnuð með fjármagni frá almenningi í gengum netið og er spennan meðal netverja gríðarleg. Myndin var afhjúpuð við hátíðlega athöfn á kvikmyndahátiðinni í Berlín í febrúar og fékk þar magnaðar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda.

Í síðustu andartökum seinni heimsstyrjaldarinnar nær hópur Nasista í leynilegri geimáætlun að koma sér undan tortímingu og flýja til tunglsins; sem sagt myrkvaða hluta tunglsins. Í heil 70 ára tekst þeim að leynast þar og byggja upp risavaxið borgvirki, með umfangsmiklum herflota af geimflaugum.

Þegar ameríski geimfarinn James Washington (Chrisopher Kirby) lendir á tunglinu, aðeins of nálægt leynilegum höfuðstöðvum Nasistanna, ákveður Foringi tunglsins að hin dýrðlega stund hefndarinnar sé runninn upp, fyrr en áætlað var. Washinton heldur því fram að sendiförin sé ekkert annað en kosningabrella núverandi forseta Bandaríkjanna (Stephanie Paul), en auðvitað er maðurinn að ljúga og auðvitað er hann að njósna vegna yfirvofandir árásar frá jarðarbúum. Fjórða ríkið verður að bregðast við!

Tveir fyrirtaks Nasistar, hinn miskunnarlausi Klaus Adler (Götz Otto) og hugsjónamanneskjan Renate Richter (Julia Dietze) ferðast til jarðarinnar til að undirbúa innrásina. Þegar herskip Tungl-Nasistanna fylla himininn, tilbúin að ráðast á grunlausa jarðarbúa er ljóst að hver maður, kona og þjóð þurfa að líta djúpt í eigin sál og endurmeta gildi sín og forgangsröðun.

Leikstjóri: Timo Vuorensola
Handrit: Johanna Sinisalo & Jarmo Puskala
Leikarar: Udo Kier, Kym Jackson & Julia Dietze

Myndin á Miði.is
Opinber heimasíða

Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Í bíó


fréttaskot

Frönsk kvikmyndahátíð hefst 27. janúr í Háskólabíói

Frönsk kvikmyndahátíð hefur fest sig í sessi í upphafi árs sem einn skemmtilegasti menningarviðburður ársins og nú skartar hátíðin opnunarmyndinni The Artist.
Lesa meira Skoða athugasemdir
 

KVIKMYNDAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS 2011

Græna ljósið sýnir allar fimm myndirnar sem hafa hlotið tilnefningu til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár, dagana 7. - 11. september í Bíó Paradís.

Lesa meira Skoða athugasemdir
 

Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt

IRON SKY

Kolsvört kómedía um Nasista á tunglinu í framtíðinni. Myndi sem beðið er með eftirvæntingu víða um heim.
Lesa meira Skoða athugasemdir
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica