Væntanlegt

Declaration of war

Annar viðburður á Franskri hátíð

Romeó og Júlía eru tveir ungir leikarar. Þau verða ástfangin við fyrstu sýn, flytja inn saman og búa til barn. Dæmigerð starsaga og stofnun nýrrar fjölskyldu.

Nema hvað, Adam, litli strákurinn þeirra hegðar sér eitthvað undarlega. Foreldrarnir ungu reyna að telja sér trú um að allt sé í góðu lagi, en á endanum geta þau ekki annað horfst í augu við staðreyndir; sonur þeirra er veikur. Þeirra versta ótti er staðfestur; Adam er með illkynja heilaæxli.

Upp frá þeirri stundu er stríði lýst yfir. Stríð gegn sjúkdómnum. Stríð gegn dauðanum. Stríð gegn örvæntingu.

Það sem gerir þessa kvikmynd svo einstaka og ótrúlega magnaða að það eru hinir raunverulegu foreldrar sögunnar sem gera kvikmyndina; móðirin leikstýrir og leikur aðahlutverkið á móti föðurnum og saman skrifuðu þau handritið.

Afraksturinn er kvikmynd sem hefur heillað fólk um allan heim upp úr skónum. Á Cannes þar sem hún var frumsýnd hlaut hún til að mynda bestu móttökur allra mynda á hátíðinni, en í lok hennar var standandi uppklapp í 20 mínútur. Myndin hefur slegið rækilega í gegn í heimalandi sínu Frakklandi. Myndin er framlag Frakka til Óskarsverðlaunanna í ár.

Myndin er annar viðburður á Franskri kvikmyndahátíð sem hefst 27. janúar í Háskólabíói.

Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig



Þetta vefsvæði byggir á Eplica