Titlar

ALEKSANDRA

Aleksandra er nýjasta meistaraverk Alexandr Sokurov og er þetta í fyrsta skipti sem hann skrifar sitt eigið handrit. Það gerði hann til að skapa sögupersónu fyrir hina heimsfrægu óperusöngkonu, Galinu Vishnevskaya, sem leikur titilhlutverk myndarinnar.
 
Sokurov kallar þetta stríðsmynd án stríðs, en hann hefur óbeit á þeirri stílfærðu eða ljóðrænu ýkjunálgun sem einkennir gjarnan stórmyndir um svipað efni. Sögusviðið er stríðshrjáð Tsjetsjenía samtímans og Aleksandra Nikolaevna er amma á leið að hitta barnabarn sitt, ungan mann sem er einn besti hermaðurinn í sinni deild. Hún mun eyða nokkrum dögum á svæðinu og uppgötva nýjan heim.
 

****
"Galina Vishnevskaya hefur yfir sér reisn sviðsleikkonunnar...Sokurov segir mannlega sögu í litlausum heimi...ljúfsár og tregablandin mynd."
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið

Leikstjórn & handrit: Aleksandr Sokurov
Aðalhlutverk: Galina Vishnevskaya, Vasily Shevtsov
Land:Frak/Rús   Ár:2007   Lengd: 90mín  Tal:Rússneska

Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica