Katalógur

GUÐ BLESSI ÍSLAND

Mynd sem enginn Íslendingur má missa af

Helgi Felixson er Íslendingur, búsettur í Svíþjóð og virtur kvikmyndargerðarmaður erlendis sem hefur undanfarið ár gert fjöldan allan af vönduðum heimildarmyndum.

Hann var fyrir tilviljun staddur á Íslandi 6. október þegar Geir H. Haarde hélt sína frægu ræðu rétt fyrir setningu neyðarlaganna.

Það var erfitt að skilja nákvæmleg hvað var að gerast og ómögulegt að ímynda sér atburðina sem fylgdu í kjölfarið. En Helgi Felixson brást við með því að gera það sem hann gerir best; hann tók upp kvikmyndavélina og byrjaði að taka upp það sem fyrir augu bar.

Hverjar eru afleiðingar hrunsins fyrir venjulegt fólk í þessu landi? Við kynnumst lögreglumanni, vörubílstjóra og norn og við sjáum nýjar hliðar á Björgólfi Thor, Bjarna Ármanssyni, Jóni Ásgeiri og Geir H. Haarde.

Guð blessi Ísland er söguleg kvikmynd sem var heimsfrumsýnd 6. október 2009 á Íslandi og verður í kjölfarið sýnd víða um heim.

Leikstjóri og tökumaður: Helgi Felixson
Handrit og framleiðsla: Titti Johnson og Helgi Felixson
Meðframleiðendur: Eva Rink og Heino Deckert
Klipping: Steffi Thors Tónlist: Hilmar Örn
Hljóðvinnsla: Ingvar Lundberg   Grafík: Daníel Oddsson
Fram koma m.a.: Sturla Jónsonn, Eva Hauksdóttir, Þórir Rúnar Geirjónsson, Björgólfur Thor Björgólfsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Bjarni Ármansson og Geir H. Haarde.

Heimasíða myndarinnar
Miðasala

Myndin á Facebook

Umræður (1) Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica