Eldra
innocent voices
Áhrifamikil, mannleg kvikmynd eftir Luis Mandoki (When a Man Loves a Woman, Message in a Bottle og Angel Eyes). Hér snýr hann aftur á heimaslóðir til að segja sögu af 11 ára dreng í stríði, en byggt er á sannsögulegum atburðum í lífi handritshöfundar myndarinnar, Oscar Orlando Torres.
Chava er 11 ára og reynir eftir fremsta megni að lifa eins venjulegu lífi og hann getur, þrátt fyrir reglulega mikla fátæk sem hann býr við, útgöngubann hersins og byssubardaga sem ógna lífi hans. Þegar 12 ára afmælið nálgast, þarf hann að taka erfiða ákvörðun þar sem herinn krefst inngöngu allra drengja á þeim aldri. Annað hvort lætur hann verða af því, eða slæst í lið með uppreisnarskæruliðunum.
Myndin vann til verðlauna á Berlínarhátíðinni fyrr á árinu og var valin besta mynd Seattle hátíðarinnar.
Leikstjóri: Luis Mandoki
Aðalleikarar: Carlos Padilla, Leonor Varela, Xuna Primus, Gustavo Munoz
Lengd: 120 mín
Framleiðsluland: Mexico, BNA
Ár: 2004

