Eldra
The proposition
Vestri eins og þeir gerast bestir, eftir Nick Cave
Meistaraverk leikstýrt af John Hillcoat og skrifað af engum öðrum en Nick Cave! Magnaður vestri sem á ótrúlega grípandi hátt segir frá sterkum fjölskylduböndum, trausti og svikum, seint á 18 öld í skítugustu Ástralíu.
Árið er 1880 og Burns bræðurnir eru eftirlýstir fyrir hryllilega glæpi þegar tveir yngstu bræðurnir eru handsamaðir, Charlie(Guy Pearce) og Mikey. Lögreglan gerir tilboð sem virðist óframkvæmanlegt en getur bundið enda á þann blóðuga hrylling sem virðist fylgja geðveikum stóra bróðir.
Myndin er vönduð og dásamlega vel leikstýrð af aldarvini Cave, John Hillcoat og meðal leikara auk Pearce (LA Confidential; Memento) sem þykir sýna sinn besta leik til þessa, má nefna Emily Watson (Breaking the Waves, Punch Drunk Love), John Hurt (Hellboy) og Ray Winstone (Sexy Beast; King Arthur; Ripley’s Game). Auk þess að hafa skrifað handritið á Nick Cave einnig heiðurinn af tónlistinni.
Leikstjóri: John Hillcoat
Handrit: Nick Cave
Aðalleikarar: Guy Pearce, Emily Watson, John Hurt, Ray Winston.
Framleiðsluland: Ástralía
Ár: 2004

