2011
SVÍNASTÍAN
Sýnd áfram í nokkra daga í Bíó Paradís
Pernilla August leikstjóri myndarinnar sótti landið heim í tilefni frumsýningar og var með ógleymanlega Spurt og svarað sýningu.
Morgun einn rétt fyrir jól fær Leena (34) símtal frá sjúkrahúsi í bænum sem hún ólst upp í. Henni er sagt að móðir hennar sé að deyja. Fréttirnar verða til þess að unga konan fer til að hitta móður sína í fyrsta sinn frá því hún var fullorðin. Leena hefur barist til að losna við sorgina vegna glataðrar, myrkrar æsku sinnar. Hún neyðist nú til að takast á við fortíðina til að halda lífinu áfram.
Svínastían er fyrsta myndin sem sænska verðlaunaleikkonan Pernilla August leikstýrir. Myndin er byggð á metsölubókinni „Svinalängorna“ eftir Susanna Alakoski. Myndin var heimsfrumsýnd á gagnrýnendaviku í Feneyjum 2010 þar sem hún hlaut Audience-Critics Week verðlaunin og UNESCO-Hope verðlaunin. Myndin hefur síðan hlotið mörg önnur eftirsótt verðlaun eins og NDR Best Feature Film í Lübeck and þrenn Guldbagge verðlaun fyrir bestu leikstjórn, bestu leikkonu í aukahlutverki (Outi Mäenpää frá Finnlandi) og bestu klippingu (Åsa Mossberg). Um 650.000 manns sáu myndina í Skandínavíu (nær 400.000 í Svíþjóð) og var hún ein metsölumynda Nordisk Film í Skandínavíu eftir Millenium-þríleikinn.
*****
"Noomi Rapace er frábær í hlutverki Leenu, sýnir á sér allt aðra hlið en í Millennium-þríleiknum og um leið hversu stórkostleg leikkona hún er. Hnátan Tehilla Blad, sem leikur Leenu unga, gefur Noomi svo lítið eftir. Og Pernilla segir sögu Leenu af svo mikilli tilfinningu og tilgerðarleysi að það þarf enginn að skammast sín fyrir að fella nokkur tár yfir örlögum stúlkunnar sem slapp úr svínastíunni."
- Þórarinn Þórarinnsson, Fréttatíminn
Sýningartímar og miðasala
Myndin á IMDB

