2010

NIKULÁS LITLI

Opnunarmynd franskrar hátíðar 2010


Frábær fjölskyldumynd sem kemur allir fjölskyldunni til að brosa, ef ekki skellihlæja. Langvinsælasta mynd ársins 2009 í Frakklandi og gagnrýnendur halda ekki vatni.

Sagan:
Nikulás litli lifir friðsömu lífi. Hann á foreldra sem þykir vænt um hann og hóp af góðum vinum til að leika sér við. Hann vill engu breyta. Dag einn heyrir hann óvart á tal foreldra sinna og skilst að móðir hans eigi von á barni. Hann fyllist ofsahræðslu og ímyndar sér hið versta. Brátt eignast hann lítinn bróður og foreldrar hans verða svo uppteknir af nýja barninu að þau hafa ekki lengur tíma fyrir Nikulás og skilja hann á endanum eftir aleinan úti í skógi, alveg eins og Tuma þumal...

****
"
Nikulás litli
er gamanmynd fyrir alla fjölskylduna, hún var vinsælasta kvikmyndin í Frakklandi í fyrra en yfir fimm milljónir áhorfenda sáu hana. Ekki þarf að undra þessar vinsældir því myndin er frábær í alla staði. Horft er með augum barnsins á heiminn og fyrir vikið verður myndin einlæg og mannleg. Ekki er farið yfir strikið í fíflaganginum í myndinni eins og gerist iðulega í amerískum fjölskyldumyndum. Leikurinn er mjög góður og hver leikari sniðinn fyrir sitt hlutverk, aðdáunarvert er hversu vel hinir ungu leikarar fara með sitt."
- Ingveldur Geirsdóttir, Morgunblaðið

Leikstjórn : Laurent Tirard   Aðalhlutverk : Maxime Godart, Valérie Lemercier, Kad Merad   Land: Frakkland  
Tegund
: Gamanmynd / fjölskyldumynd   Lengd : 90 mín

ATH: Myndin verður sýnd áfram nokkra daga og er nú sýnd með íslenskum texta.

MIÐASALA

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica