2010
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ 2010
15. - 28. janúar í Háskólabíó
10 gæðamyndir frumsýndar frá fjórum löndum. Opnunarmyndin er fjölskyldumyndin Nikulás litli sem var vinsælasta myndin í Frakklandi á síðasta ári.
Í tilefni af því að hátíðin er nú haldin í 10. sinn mun hún teygja sig norður til Akureyrar. Í byrjun febrúar verða valdar myndir af hátíðinni í Reykjavík sýndar á Akureyri, en hátíðin mun einnig setja svip sinn á bæinn með ýmsum hætti. Nánari upplýsingar um kvikmyndahátíðina á Akureyri verða sendar út síðar.
Hægt er að kaupa 5 mynda passa á 4.000 kr í Háskólabíói.
Miðasala á Miði.is
Dagskráin á vefsíðu Alliance Francaise
ATH: ALLAR MYNDIR ERU SÝNDAR MEÐ ENSKUM TEXTA
Myndirnar tíu eru eftirfarandi...
::: LE PETIT NICOLAS (Ísl : Nikulás litli) (2008) :::
Leikstjórn : Laurent Tirard Aðalhlutverk : Maxime Godart, Valérie Lemercier, Kad Merad Land: Frakkland
Tegund: Gamanmynd / fjölskyldumynd Lengd: 90 mín
Gamanmynd fyrir alla fjölskylduna. Myndin er byggð á samnefndri persónu sem Sempé og Goscinny, höfundur Astérix, bjuggu til. Langvinsælasta kvikmyndin í Frakklandi 2009, með yfir 5 milljónir áhorfenda! Franska sendiráðið mælir sérstaklega með þessari!
Nikulás litli lifir friðsömu lífi. Hann á foreldra sem þykir vænt um hann og hóp af góðum vinum til að leika sér við. Hann vill engu breyta.
Dag einn heyrir hann óvart á tal foreldra sinna og skilst að móðir hans eigi von á barni. Hann fyllist ofsahræðslu og ímyndar sér hið versta. Brátt eignast hann lítinn bróður og foreldrar hans verða svo uppteknir af nýja barninu að þau hafa ekki lengur tíma fyrir Nikulás og skilja hann á endanum eftir aleinan úti í skógi, alveg eins og Tuma þumal...
::: BON COP, BAD COP (Ísl : Góð lögga, vond lögga) (2006) :::
Leikstjóri: Erik Canuel Aðalhlutverk : Patrick Huard, Colm Feore, Lucie Laurier Land: Kanada
Tegund : Glæpamynd Lengd : 116 mín
Lögreglumynd í léttum dúr þar sem gert er stólpagrín að hinni fransk-ensku Kanada! Kosin besta myndin í Kanada árið 2006.
David Bouchard og Martin Ward eru eins ólíkir og hugsast getur. Annar er frönskumælandi og frá Montréal, hinn er enskumælandi og frá Toronto. Annar er löghlýðinn, hinn fer að sínum eigin lögum. Þeir neyðast til að vinna saman að sakamáli, sem vegna sérstakra aðstæðna tilheyrir lögsögu þeirra beggja. Ágreiningur þeirra teflir rannsókninni í hættu en hjálpar þeim líka að komast til botns í málinu.
::: C'EST PAS MOI, JE LE JURE! C'est pas moi, je le jure ! (Ísl : Það var ekki ég, ég sver það!) (2008) :::
Leikstjórn : Philippe Falardeau Aðalhlutverk : Antoine Lecuyer, Suzanne Clément, Daniel Brière
Land: Kanada Tegund: Dramatísk gamanmynd
Lengd: 105 mín
Stórskemmtileg mynd um ungt fólk! Allir sem hrifust af C.R.A.Z.Y á síðasta ári verða að sjá þessa mynd. Sendiráð Kanada á Íslandi mælir sérstaklega með þessari mynd.
Árið 1968 breytist líf hins tíu ára Léon Doré. Þá flytur móðir hans til Grikklands til að komast frá yfirþyrmandi eiginmanni sínum, og skilur syni sína tvo eftir í hans umsjá. Eldri bróðir Léon verður sífellt bitrari, á meðan Léon fer um hverfið með hnupli og ólátum, snýr húsi nágrannanna á hvolf á meðan þeir eru í fríi, gerir sér upp sjónleysi til að afsaka slakar einkunnir í skólanum, og gerir föður sinn og alla aðra vitlausa. Nema Léu, unga nágrannakonu sína, sem skilur hvers vegna hann lætur svona. Hún á sjálf ýmislegt óuppgert við lífið, og ætlar að hjálpa Léon að stela nægum peningum til að geta keypt flugmiða til Grikklands.
::: CLEAN (ísl. Edrú) (2003) :::
Leikstjórn : Olivier Assayas Aðalhlutverk : Maggie Cheung, Nick Nolte, Béatrice Dalle
Land: Frakkland/England/Kanada
Tegund : Drama, söngleikur Lengd : 110 mín
Myndinni Clean var einstaklega vel tekið af gagnrýnendum og áhorfendum. Þetta er spennumynd sem stendur bandarískum myndum ekkert að baki á því sviði. Maggie Cheung fékk sérstaka viðurkenningu sem besta leikkonan á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. Quentin Tarantino, sem þá var formaður dómnefndar, lýsti því yfir að honum fyndist hún vera "ein besta leikkona heims".
Manneskjan breytist þegar hún á engra kosta völ. Tengdaforeldrar Emily ala upp son hennar án þess að hún fái að koma þar nálægt, en það sem hún þráir umfram allt annað er að fá son sinn aftur. En til þess verður hún að ná tökum á lífi sínu...verða edrú.
::: CÆURS (ísl. Hjörtun) (2006) :::
Leikstjórn : Alain Resnais Aðalhlutverk : Sabine Azéma, Lambert Wilson, André Dussollier Land: Frakkland/Ítalía Tegund : Drama Lengd : 125 mín
“Besta mynd Resnais í tuttugu ár”! Cœurs fékk silfurljónið á Mostrahátíðinni í Feneyjum árið 2006. Fyrr á þessu ári veitti kvikmyndahátíðin í Cannes leikstjóranum Alain Resnais sérstök verðlaun fyrir kvikmyndir sínar. Alain Resnais er þekktasti og viðurkenndasti kvikmyndaleikstjóri Frakka nú um stundir.
Í þessari mögnuðu mynd sýnir einn virtasti leikstjóri Frakka, Alain Resnais, hvernig líf sögupersóna í nokkrum sögum skarast, hvernig lífið gengur fyrir sig í París að vetrarlagi. Fasteignasali nokkur sveiflast milli erfiðra kúnna og samstarfskonu sinnar. Ung kona les einkamálaauglýsingar í laumi í von um að finna þar hina einu sönnu ást. Fyrrverandi hermaður, sem nú er atvinnulaus, sekkur í drykkjuskap. Barþjónninn sem horfir uppá það þarf hins vegar að umbera aldraðan, sjúkan föður sinn... Lífið er eins konar hringrás þar sem gjörðir eins einstaklings geta umbylt örlögum annars, jafnvel þótt þeir þekkist ekkert og hafi aldrei hist.
::: DÉLICE PALOMA (Ísl. Ljúfa Paloma) (2007) :::
Leikstjórn : Nadir Moknèche Aðalhlutverk : Biyouna, Nadia Kaci, Aylin Prandi Land: Frakkland
Tegund : Dramatísk gamanmynd Lengd : 134 mín
Hann Nadir Moknèche er nokkurs konar Almodóvar frá Alsír, og býður áhorfandanum upp á að kynnast ýmsum óvæntum og skemmtilegum hliðum Alsírs. Leikkonan í aðalhlutverkinu er aldeilis frábær!
Vantar þig ökuskírteini? Ertu einn í kvöld? Hringdu þá í frú Aldséria, velgerðarkonu allra: hún bjargar þessu fyrir þig. Hún, sem tók sér nafn heimalands síns, beitir öllum brögðum til að komast af í Alsír nútímans. Ef stúlkurnar hennar eru tryggar og trúar geta þær náð langt. Sú nýjasta, Paloma, hefur mikil áhrif, sérstaklega á Riyad, son Frú Aldsériu. Kaupin á Caracalla heilsulindunum áttu að gerbreyta lífi klíku Frú Aldséria, en reyndin varð þveröfug.
::: KHAMSA(Ísl. Verndargripurinn) (2008) :::
Leikstjórn : Karim Dridi Aðalhlutverk : Marco Cortes, Raymond Adam, Magalie Contreras Land: Frakkland Tegund : Spennumynd Lengd : 108 mín
Alliance Française mælir sérstaklega með þessari! Allir eru sammála,netverjar og fjölmiðlar: Khamsa er mynd sem allir verða að sjá!
Khamsa, 13 ára, flýr frá fósturforeldrum sínum, til að fara aftur í sígaunaþorpið þar sem hann fæddist. Þetta er í byrjun sumars, krakkarnir stinga sér í sjóinn við slippinn í Estaque, þau spila fram á nótt og hnupla frá nágrönnunum. Khamsa og frændi hans, dvergurinn Boyard, kaupa sér hana til að nota í hanaat. Þá dreymir um ríkidæmi og frelsi. Þangað til það gerist, fara Khamsa og æskuvinur hans, Coyote, út í smáhnupl. Þá kynnist hann Rachitique, ungum araba úr nágrannabæ. Brátt fara vinirnir þrír úr því að stela skellinöðrum yfir í innbrot. En hönd Fatma, verndargripurinn sem Khamsa ber alltaf um hálsinn, getur ekki alltaf verndað hann.
::: LE PREMIER CRI (Ísl : Frumgráturinn) (2006)
Leikstjóri: Gilles de Maistre Land: Frakkland
Tegund: Heimildamynd Lengd: 100 mín
Saga okkar allra! Hrífandi heimildamynd þar sem því tilfinningaflóði sem barnsfæðing kemur af stað er lýst af mikilli nærfærni.
Hér er sögð töfrandi saga fyrsta gráts ævinnar, sem staðfestir komu manns í heiminn. Fæðingin er í sviðsljósinu, um allan heim. Ólík lönd, ólíkar þjóðir og ólík menning er vettvangur þessarar fallegu og óvenjulegu ferðar. Á einum sólarhring um allan heim mætast örlög ólíkra einstaklinga í einni sameiginlegri upplifun; að koma barni í heiminn.
Í myndinni er fylgst með komu raunverulegra barna í heiminn og fyrstu upplifunum þeirra. Fæðingar í fjarlægum löndum eru eins ólíkar og manneskjurnar eru margar.
::: LOUISE MICHEL (2008) :::
Leikstjórn : Sólveig Anspach
Aðalhlutverk : Sylvie Testud, Nathalie Boutefeu, Coralie André Land: Frakkland Tegund: Ævisöguleg mynd
Lengd: 90 mín
Tvær sýningar á nýjustu mynd fransk-íslenska leikstjórans Sólveigar Anspach!
Louise Michel var franskur stjórnleysingi, femínisti, kennari og hjúkrunarkona. Hún hugleiddi að ráða Napóleon þriðja af dögum, Victor Hugo samdi ljóð um hana og loks var hún send í útlegð til Nýju-Kaledóníu þar sem hún eyddi átta árum og barðist með frumbyggjunum, Kanökum, fyrir aukinni sjálfstjórn þeim til handa. Myndin fjallar aðallega um dvöl hennar í Nýju-Kaledóníu, þar sem franskir byltingamenn reyna að búa sér tilvist á fanganýlendu hinum megin á hnettinum. Þetta er mynd um ofbeldi og yfirgang valdsins gegn sínum eigin þegnum, blindu nýlendustefnunnar og óvenjulega sambúð hinna undirokuðu.
::: MEURTRIÉRES (ísl. Morðkvendi) (2006) :::
Leikstjórn : Patrick Grandperret
Aðalhlutverk : Hande Kodja, Céline Sallette, Gianni Giardinelli Land: Frakkland Tegund : Drama
Lengd : 96 mín
Sýnd á Festival de Cannes árið 2006. Frönsk útgáfa af myndinni Thelma & Louise!
Nína og Lizzy eru svolítið viðkvæmar og finnst þær aðeins vera sterkar og hamingjusamar þegar þær eru saman. Þær eru frekar óheppnar, staurblankar og eiga sér bara einn draum: að finna ástina. En hver ný kynni loka bara enn betur dyrunum að heiminum sem þær hafa ekki aðgang að. Maður kemst ekki langt með tvo tóma vasa. Nema kannski hreinlega alltof langt...

