2010
TAKING WOODSTOCK
Frumsýnd 1. janúar í Regnboganum
Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Elliot Tiber, sem óafvitandi átti stóran þátt í að gera Woodstock hátíðina að því margfræga menningarfyrirbæri sem hún varð að.
Fjöldi stórleikara kemur fram í myndinni og hún er að sjálfsögðu stútfull af tónlist eftir helstu hetjur 7. áratugarins, þ.á.m. The Grateful Dead, Jefferson Airplane, og The Doors. Taking Woodstock er gleðilegt ferðalag aftur til þess tíma þegar allt virtist mögulegt.
Sagan
Grínistinn Demetri Martin leikur Elliot, ungan innanhúshönnuð sem yfirgefur stórborgina sumarið 1969 til að hjálpa foreldrum sínum með rekstur fjölskyldufyrirtækisins; mótel í niðurníðslu. Bankinn er við það að taka reksturinn yfir og Elliot fær gálgafrest út sumarið til að reyna koma rekstrinum í lag.
Hann fréttir að fyrirhuguð tónlistarhátið hafi misst leyfið sitt hjá nágrannabænum Walkill og býður skipuleggjendunum að gista á mótelinu sínu. Hann kynnir þá einnig fyrir nágranna sínum Max Yasgur (Eugene Levy) sem á og rekur 600 hektara akur rétt við hótelið. Fyrr en varir er Woodstock starsfólkið að flytja inn á mótelið og hálf milljón gesta á leið sinni á akurinn til að halda 3ja daga hátíð friðar og tónlistar.
Með smá hjálp frá skraulegum vinum sínum og með smá andstöðu frá ýmsum bæjarbúum, lendir Eilliot óvænt í því að standa fyrir partýi aldarinnar og skipuleggja atburð sem átti eftir að móta heila kynslóð, breyta lífi hans og dægurmenningunni til frambúðar.
Leikstjórinn
Ang Lee þarf ekki að kynna fyrir kvikmyndaháhugamönnum, en eftir meistarastykki á borð við Brokeback Mountain og Crouching Tiger, Hidden Dragon er óhætt að segja að hér sé á ferðinni einn fjölhæfasti og áhugaverðasti leikstjóri samtímans. Það er aldrei að vita hvað Ang Lee tekur sér fyrir hendur næst, enda á hann líka að baki Hollywood stórmyndir á borð við Hulk, en en með Taking Woodstock má segja að hann hverfi aftur til uppruna síns, þar sem hans kvikmyndaferill hófst með þremur ekki ósvipuðum kómedíum; Pushing Hands (1992), The Wedding Banquet (1993) og Eat Drink Man Woman (1994), en allar þessar myndir skrifaði Lee ásamt meðframleiðanda sínum James Schamus.
Heimasíða myndarinnar
Myndin á Facebook
Myndin á IMDB
Sýningartímar og miðasala
Sjónvarpsauglýsingin á Facebook
Trailerinn á YouTube

