2009
ANVIL! THE STORY OF ANVIL
Fyndnasta heimildarmynd síðari ára eru um miðaldra rokkara sem neita að láta drauminn um frægðina deyja. Þetta er Spinal Tap okkar tíma, nema hvað hér er enginn að leika.
Myndin er sýnd í Háskólabíói, en hér er á ferðinni stórkostlega skemmtileg heimildarmynd sem hefur farið sigurför um heiminn undanfarið. Myndin fjallar um rokkara á sextugsaldri sem slógu næstum því í gegn fyrir 30 árum og halda enn í vonina um að verða frægir. Þeir vinna skítastörf og taka sér frí frá þeim til að túra og taka upp plötur.
Menn á borð við Michael Moore og Keanu Reeves hafa hrósað myndinni í hástert og meðlimir AC / DC hrifust svo af meðlimum Anvil og þrautseigju þeirra að þeir buðu þeim að hita upp fyrir sig á tvennum risatónleikum vestra. Það má því segja að langþráður draumur um viðurkenningu og frægð hafi loksins ræst í kjölfar þessarar myndar.
*****
"Meistaraverk!"
- Empire
*****
"Besta mynd sem gerð hefur verið um rokk
og ról!"
- Uncut
"Ég bugta mig og beygi fyrir Anvil!
- Keanu Reeves
"Besta heimildarmynd sem ég hef séð í áraraðir!
- Michael Moore
IMDB
Heimasíða myndarinnar
Trailerinn á YouTube

