2009

ROMAN POLANSKI: WANTED AND DESIRED

Ótrúlega mögnuð heimildarmynd um hið sögufræga mál þegar Roman Polanski var árið 1977 kærður fyrir að hafa mök við 13 ára stúlku og gefa henni eiturlyf. Kaupa miða

Ellefu mánuðum síðar flúði hann til Evrópu áður en dómur var kveðinn upp, eftir að hafa játað sök sína. Myndin rannsakar hvað gerðist á þessum ellefu mánuðum með áður ósýndu myndefni, brotum úr myndum hans og nýjum viðtölum við flesta lykilaðila málsins, svo sem lögmennina og fórnarlambið, auk vini og félaga Polanski. Polanski sjálfur er sveipaður dulúð en skýr mynd birtist af innviðum réttarkerfisins í Bandaríkjunum og dómara sem hafði meira áhuga á ímynd sinni í fjölmiðlum en framgangi réttvísinnar.

Málið er nú komið í kastljósið aftur þar sem Polanski hefur nú 30 árum síðar verið handtekinn vegna málsins í Sviss og bíður framsals til Bandaríkjanna.

***1/2
"Frábær!"
- Roger Ebert

"Hárbeitt rökræða!
Vönduð og snjöll."
- The New York Times

"Svo töfrandi og kraftmikil að eins hefur varla sést áður!"
- Entertainment Weekly

"Gríðarlega grípandi og vel gerð!"
- The Hollywood Reporter

"Sannfærandi og hrífandi!"
- Los Angeles Times

"Dáleiðandi!
- Variety

"Heillandi"
- Newseek

IMDB
Trailerinn á YouTube


Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica