2009
THE SEPTEMBER ISSUE
Hér er á ferðinni bráðskemmtileg heimildarmynd um hina goðsagnakenndu Önnu Wintour, sem hefur ritstýrt Vogue og drottnað yfir tískuheiminum síðastliðin 20 ár.
Þegar kvikmyndin The Devil Wears Prada sló í gegn um allan heim fyrir nokkrum árum var ekkert farið í felur með það að karakterinn sem Meryl Streep lék svo ógleymanlega var byggður á Önnu Wintour og hér fáum við að sjá raunverulegu persónuna í essinu sínu.
Á hverju ára bíða milljónir manna um allan heim í ofvæni eftir því að komast yfir september tölublað Vogue. 2007 útgáfan vó 10 kíló og var stærsta tímarit allra tíma; það náði til 13 milljón manna og hafði afgerandi áhrif á 300 milljarða dollara tískuiðnaðinn.
Leikstjórinn R.J Cutler fær í þessari mynd óheftan og fordamælausan aðgang að Wintour og litríku starfsliði hennar við gerð þessa sögulega tímarits. Við skyggnumst djúp bak við tjöldin inn í heim sem á sér engan líka.
Myndin er sýnd í Bíóhlaupi Græna ljóssins í aðeins 14 daga.
KAUPA MIÐA

0 Athugasemd