2009
TYSON
Hér er á ferðinni ansi sláandi heimildarmynd sem þykist ekki vera hlutlaus. Ótrúlegt lífshlaup Mike Tyson er rakið með hans eigin orðum og hann hlífir engum, sérstaklega ekki sjálfum sér. Það er hinn virti leikstjóri James Toback og trúnaðarvinur Tyson sem leikstýrir myndinni og fær Tyson til að opna sig sem aldrei fyrr.
Hvað gerðist í raun og veru í naugðunarmálinu víðfræga, hvernig leið Tyson í fangelsinu, hvað var hann að hugsa þegar hann beit eyrað af Holyfield? Í þessari mynd svarar Tyson sjálfur öllum þessum spurningum og fleiri til á meðan öll hans frægustu atvik eru rifjuð upp með máli og myndum.
Bíóhlaup kynnt til sögunnar
Með útgáfu Tyson verður kynnt til sögunnar nýtt konsept sem kallast BÍÓHLAUP. Í Bíóhlaupi Græna ljóssins er viðkomandi mynd aðeins sýnd í 14 daga og verða áhugsamir því að hafa hraðar hendur vilji þeir sjá viðkomandi kvikmyndir í bíói. Myndirnar verða í flestum tilfellum sýndar á digital myndvarpa og með íslenskum texta.
Að auki má reikna með því að kvikmyndirnar í Bíóhlaupi Græna ljóssins verða ekki auglýstar með hefðbundnum aðferðum, sem sagt í sjónvarpi, útvarpi eða blöðum. Þess í stað verður aðallega treyst á póstlista Græna ljóssins og að vera í beinu sambandi við vini Græna ljóssins í gegnum Fésbókina.


0 Athugasemd