2009
WHATEVER WORKS
Woody Allen og Larry David snúa bökum saman og afraksturinn getur ekki verið annað en stórkostlegur.
Græna ljósið frumsýnir í Háskólabíói nýjustu mynd meistara Woody Allen; Whatever Works. Það er enginn annar en Larry David, maðurinn á bak við Curb Your Enthusiasm og Seinfeld þættina, sem fer með aðahlutverkið. Eins og við er að búast þegar tveir viðlíka snillingar snúa saman bökum, er útkoman með eindæmum skemmtileg.
Larry David leikur sérvitran New York búa úr yfirstéttinni er ákveður að snúa baki við sínu ljúfa lífi og gerast þess í stað lausagangsmaður. Hann hittir unga stúlku frá Suðurríkjunum (Evan Rachel Wood) og eftir að hafa umgengist hana og fjölskyldu hennar uppgötvar hann að bóhem lífið er ekki eins áhyggjulaust og hann sá fyrir sér.
Margir vilja meina að hér sá á ferðinni besta mynd Woody Allen í áraraðir og gagnrýnendur hafa kallað hana "feel-good" mynd ársins.
Þeir sem eru skráðir á póstlista Græna ljóssins eða eru vinir Græna ljóssins á Facebook fá sendan kóða fyrir helgi sem gerir þeim kleift að tryggja sér tvo miða á verði eins á föstudaginn.
***1/2
"Leiftrandi af bráðhnyttnum tilsvörum, meinfýsnum skotum á hégómleika og sýndarmennsku, eifnaldlega mynd sem kemur manni í gott skap."
- Sæbjörn Valdimarsson, Mbl
****
"Besta mynd hans í áraraðir og lúmskasta gamanmynd sem ratað hefur í íslensk kvikmyndahús lengi."
- ÞÞ, DV
***1/2
"Ein af betri myndum Allens síðastliðin tuttugu ár."
- T.V. - Kvikmyndir.is
"Besta mynd Woody Allen í áraraðir!"
- Miami Herald
"Larry David fer á kostum!"
- Philapelphia Inquirer
"Feel-good mynd ársins!"
- Time
IMDB
Facebook
Sjónvarpsauglýsingin

