2009
BROKEN EMBRACES
Nýjasta mynd Pedro Almodóvar skartar nýslegnum Óskarsverðlaunahafa Penélope Cruz í aðalhlutverkinu.
Blindur handritahöfundur var áður kvikmyndaleikstjóri og kallaði sig Mateo. Hvernig missti hann sjónina? Hverfum aftur um 14 ár til 10.áratugarins. Mateo er ráðinn til að leikstýra mynd og verður samstundis ástfanginn af Lenu (Cruz), aðalstjörnu myndarinnar og viðhald framleiðandans, sem er aldraður milljarðamæringur. Mateo og Lena hefja eldheitt ástarsamband á meðan framleiðandinn ræður son sinn til að njósna um þau.
****1/2
"...afþreyingargildi myndarinnar er hámarkað og stílhrein formfágun hennar vekur sjónræna nautn meðal áhorfenda.
Öll leikumgjörð, kvikmyndataka og lýsing er stórfengleg. Hver einasti rammi er útpældur, litir og áferð ríma og takast á og sviðsmyndin er gjarnan notuð til innrömmunar."
- Hjördís Stefánsdóttir, Morgunblaðinu 20. október
SÝNINGARTÍMAR OG MIÐASALA
Leikstjóri: Pedro Almodóvar
Handrit: Pedro Almodóvar
Leikarar: Penélope Cruz, Lluís Homar, Blanca Portillo, José Luis Gómez, Tamar Novas and Rubén Ochandiano
.
| Tegund Drama |
Tungumál Spænska |
Lengd 128 min |
Frumsýnd 16/10/09 |
![]() |


