2009
THE READER
Sýnd í Háskólabíói
Stephen Daldry (The Hours, Billy Elliot) leikstýrir Kate Winslet í magnaðri mynd sem hlaut á dögunum sem rakar nú til sín verðlaunum og tilnefningum.
Ber þar hæst Golden Globe verðlaun Kate Winslet fyrir frammistöðu sína í myndinni og 5 Óskartilefningar; besta myndin, leikstjórnin, handritið, leikurinn og kvikmyndatakan. Öll verðlaun og tilnefningar.
Um myndina:
Sagan hefst skömmu eftir sinni heimsstyrjöldina í Þýskalandi er unglingurinn Michael Berg veikist og nýtur aðstoðar Hönnu, konu sem er tvöfald eldri, við að komast heim til sín. Fyrr en varir hefja þau ástríðufullt og leynilegt ástarsamband.
Michael uppgötvar að Hanna elskar að láta lesa fyrir sig og kynferðissamband þeirra dýpkar. Þrátt fyrir sterka tengingu þeirra á milli hverfur Hanna einn góðan veðurdag og Michael er skilinn eftir ringlaður og vængbrotinn.
Átta árum síðar er Michael orðinn laganemi og er að fylgjast með réttarhöldum yfir nasistum þegar hann verður fyrir sjokki; einn af sakborningunum er Hanna.
Smám saman flettist ofan af fortíð Hönnu og Michael uppgötvar leyndarmál sem mun hafa áhrif á líf þeirra beggja. The Reader er saga um sannleikann og sættir og það hvernig ein kynslóð tekst á við glæpi annarrar..
Sjónvarpsauglýsingin á YouTube:

