2009

MILK

Sýnd í Háskólabíói

Gus van Sant og Sean Penn snúa bökum saman til að segja sanna en ótrúlega sögu Harvey Milk. Afraksturinn er meistaraverk sem fer nú mikla sigurför um heiminn, er hlaðin lofi gagnrýnenda og hlaut á dögunum hvorki meira né minna en 8 tilnefningar til Óskarsverðlauna, en þau verða einmitt afhent á sunnudaginn.

Öll verðlaun og tilnefningar
Græna ljósið á Facebook

Um myndina
Mennréttindafrömuður. Vinur. Elskuhugi. Sameiningartákn. Baráttumaður. Hetja. Hann breytti sögunni og hugrekki hans umbreytti lífi fjölda fólks um alla framtíð.

Árið 1977 varð Harvey Milk fyrsti opinskái samkynhneigði maðurinn til að hljóta kosningu í meiriháttar opinbert embætti í Bandaríkjunum. Sigur hans var ekki bara sigur fyrir samkynhneigða því hann beitti sér í ýmsum málum og myndaði bandalög við alls konar hópa og samtök, allt frá eldri borgurum til verkaðlýðsfélaga. Harvey Milk endurskilgreindi hlutverk þeirra sem berjast fyrir mannréttindum og áður en hann var myrtur árið 1978 var hann orðinn að sannkallaðri hetju í heimalandi sínu.

Myndin spannar átta síðustu ár ævi hans. Milk er orðinn 40 ára og þráir meiri tilgang í líf sitt. Hann flytur ásamt kærasta sínum til San Francisco þar sem þeir stofna litla verslun, sem verður fljótlega athvarf fyrir samkynhneigða í borginni. Hann fer fljótlega að koma sér og sínum á óvart með því að tali máli samkynhneigðra hvarvetna og berjast opinberlega fyrir auknum réttindum þeirra.

Hann hellir sér á kaf í pólitíkina, með stuðningi vina sinna og lætur engar fortölur eða hindranir stöðva sig. Eftir þó nokkrar tilraunir nær hann loks kosningu, en stjórnmálabaráttan kostar hann sambönd við ástvini og nýjir óvinir verða til, innan kerfisins í San Francisco og fyrir utan það. Með húmorinn að vopni heillar hann almenning og með óbilandi von og bjartsýni í farteskinu lætur hann aldrei deigan síga. Arfleifð þessarar hetju lifir enn og á fullt erindi í dag.

Leikstjóri myndarinnar er Gus Van Sant (Good Will Hunting), handritið er eftir Dustin Lance Black og í öðrum hlutverkum eru Josh Brolin (No Country For Old Men), James Franco (Spiderman), Diego Luna (Y tu mamá también) og Emile Hirsch (Into the Wild).

Sjónvarpsauglýsingin á YouTube:

Trailerinn á YouTube:



0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica