2009

THE WRESTLER

Upplifðu endurreisn Mickey Rourke í sannkölluðu meistararverki. Rourke hefur nú þegar unnið Golden Globe verðlaun og hlotið tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir ótrúlega frammistöðu sína.

Talað hefur verið um endurkomu aldarinnar hjá Mickey Rourke, sem rakar nú til sín tilnefningum og verðlaunum fyrir frammistöðu sína í myndinni. Marisa Tomei er einnig tilnefnd til Óskarsverðlauna.

* * * * 1/2
"Einstök kvikmyndaupplifun!"
- Dóri DNA, DV

***1/2
"Rourke eignar sér ekki aðeins myndina, hann ER öll myndin! Frábær leikur, stórgóð mynd!"
- Tommi, kvikmyndir.is

Um myndina:
Á 7. áratugnum var Randy "The Ram" Robinson (Rourke) sannkölluð glímustjarna. Nú, 20 árum síðar, lætur hann enda ná saman með því að koma fram fyrir hörðustu glímuaðdáendurna í leikfimisölum og félagsmiðstöðvum.

Raknað hefur upp úr sambandi hans við dóttur sína (Evan Rachel Wood) og svo til alla aðra í hans lífi, en það sem heldur honum gangandi er stemmningin sem fylgir glímubardögunum og aðdáun áhorfenda.

Skyndilegt hjartaáfall neyðir hann í helgan stein. Hann veit ekki hvað á hann af sér að gera og byrjar að líta í eigin barm og meta líf sitt. Hann gerir tilraun til að endurlífga sambandið við dótturina og heilla strippara í eldri kantinum (Marisa Tomei) sem virðist líka vera tilbúin til að hefja nýtt líf.

Þegar á hólminn er komið jafnast þó ekkert á við glímuna, sviðsljósið og ástríðuna sem hann hefur fyrir því að koma fram. Þrátt fyrir veikt hjarta og líkama sem er að gefa sig setur hann stefnuna á einn lokabardaga í viðbót; uppgjör við erkióvin frá fornri tíð.

Leikstjóri myndarinn er Darren Aronofsky sem á baki myndir á borð við Requiem for a Dream, Pi og The Fountain.

Um leikstjórann:
From his first feature Pi to his new festival-closer The Wrestler, Darren Aronofsky has been an outsider, whose work is characterized by its sharp cinematic intelligence and a distinctive style that brings complex dreamlike visual trajectories to sharply edged storylines. Finally, a chance to see what makes him tick! Film Society program director and festival selection committee chair Richard Peña will host the Brooklyn-born filmmaker.

Úr Variety dómi:
Talk about comebacks. After many years in the wilderness and being considered MIA professionally, Mickey Rourke, just like the washed-up character he plays, attempts a return to the big show in "The Wrestler." Not only does he pull it off, but Rourke creates a galvanizing, humorous, deeply moving portrait that instantly takes its place among the great, iconic screen performances. An elemental story simply and brilliantly told, Darren Aronofsky's fourth feature is a winner from every possible angle, although it will require deft handling by a smart distributor to overcome public preconceptions about Rourke, the subject matter and the nature of the film.

25 sek TV auglýsingin á YouTube:


0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica