2009
VICKY CRISTINA BARCELONA
Fyndnasta og skemmtilegasta mynd Woody Allen í áraraðir að mati gagnrýnenda. Javier Bardem, Scarlett Johanson og Penelope Cruz fara á kostum. KAUPA MIÐA
New York lék stórt hlutverk hjá Woody Allen í myndum á borð við Manhattan en hér er það Barcelona sem er leikvöllurinn fyrir ástarævintýri Vicky og Cristinu. Þessar tvær ungu stúlkur frá Bandaríkjunum ákveða að eyða einu sumri á Spáni og hitta frjálslegan listamann (Javier Bardem) og gullfallega en geðveika fyrrverandi eiginkonu hans (Penélope Cruz). Vicky (Rebecca Hall) er jarðbundin og um það bil að giftast. Cristina (Scarlett Johansson) er ævintýragjörn og hvatvís. Þegar þessar fjórar manneskjur flækjast saman í vef kynlífs og ásta þá skapast kómísk ringulreið að hætti Woody Allen.
Myndin hefur rakað til sínum fjöldanum allanum af tilnefningum og verðlaunum undanfarið. Myndin var til að mynda tilnefnd til fjögurra Golden Globe verðlauna og sigraði aðalflokkinn þegar hún var valin besta mynd ársins í flokki gaman- og söngvamynda.
Fyrir nokkrum dögum var Penélope Cruz svo tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta leikkonan í aukahlutverki.
15 sekúndna auglýsing frá Græna ljósinu:
