2008
RELIGULOUS
Frá leiksjóra Borat kemur kómedía sem á eftir að valda umtali; Bill Maher er gerður út af örkinni til að Kryfja trúarbrögð heimsins, eins og þau hafa aldrei verið krufin áður.
Eins og við má búast þegar þessir tveir menn leiða saman hesta sína er útkoman bráðfyndin, hárbeitt og væntanlega í augum margra hneykslanleg, enda hafa þar sýnst að þeim er ekkert heilagt og sanna það vel hér.
Maher á bágt með að skilja hvernig fólk sm er annars mjög skynsamt og rökfast í sínu daglega lífi getur hent allri rökhugsun út um glugann þegar kemur að trúmálum. Hann ferðast um allan heiminn til að hitta ýmsa spekinga og lætur allt vaða. Viðtölin eru afskaplega eftirminnileg og ýmsar óborganlegar uppákomur festar á filmu.
Umsagnir
"Hér er á ferðinni mikilvæg kvikmynd sem ögrar mörgum af þeim skoðunum sem mörg okkar vilja síður ræða. Umfram allt er hún þó bráðfyndin!"
- Ben Mankiewicz, At the Movies
"Margt af því sem hér er fest á filmu er svo skemmtilegt og fróðlegt að maður þráir meira og það liggur við að maður fari á hnéin og biðji um framhald!"
- Pete Hammond, Hollywood.com
"Þessi mynd mun annað hvort móðga þig eða láta þig skellihlæja. Á köflum er líklegt að hún geri hvoru tveggja í senn!"
- Linda Cook, Quad City Times
Sjónvarpsauglýsingin frá Græna ljósinu:
Trailerinn á YouTube:
Bill Maher hjá Larry King:

