Skífan er DVD heimili Græna ljóssins og við mælum sérstaklega með Videohöllinni í Lágmúla sem sinnir okkar myndum prýðisvel.
Á VOD leigu Vodafone er sérflokkur fyrir okkar myndir og á VOD leigu Skjásins eru hægt að finna flestar okkar myndir í flokkurinn Fjalakötturinn.
Það er svo RÚV sem sýnir velflestar myndirnar á endanum í sjónvarpi.
Svínastían eftir Pernilla August sló í gegn á Kvikmyndaverðlaunum Norðurlanda og verður því sýnd áfram í nokkra daga í Bíó Paradís
Lesa meira
Í tilefni tuttugu ára starfsafmælis Pearl Jam verður glæný heimildarmynd Óskarsverðlaunaleikstjórans Cameron Crowe um frumsýnd um allan heim, þriðjudaginn 20. september.
Lesa meira
Enn eitt meistarastykkið frá Lars von Trier en bæði hann og myndin gerðu allt vitlaust á síðustu Cannes hátíð. Myndin hefur verið hlaðin lofi og Kirsten Dunst var valinn besta leikkonan á Cannes hátíðinni í ár.
Lesa meira
Innileg og falleg kvikmynd frá Óskarsverðlaunahafanum Adam Elliot sem segir sögu tveggja ólíklegra vina frá ólíkum heimum sem mynda óvenjulegan vinskap
Lesa meira
Frábær mynd sem hefur verið líkt við bæði American Graffiti og Virgin's Suicides og fengið verðskuldaða athygli á kvikmyndahatíðum á borð við Cannes og South by Soutwest.
Frá prinsi heimildarmyndanna, Morgan Spurlock (Super Size Me og Where in the World is Osama Bin Laden?) kemur enn ein snilldin.
Stórfengleg mynd eftir Susanne Bier sem vann Óskar og Golden Globe sem besta erlenda mynd ársins.
Javier Bardem sýnir einstakan stórleik í mynd sem hlaut tvær tilefningar til Óskarsverðlauna. Eftir leikstjóra Babel, 21 Grams og Amores Perros.
Gríðarleg fjölbreytni, gróska og frumleiki einkenna franska kvikmyndagerð nú um stundir og franskar kvikmyndahátíðir eru tíðir viðburðir um allan heim.
Lesa meira
Óskarsverðlaunahafinn Sofia Copppola sendir frá sér einlæga sögu frá Los Angeles, um kvikmyndastjörnu á villigötum og samband hans við 11 ára dóttur sína.
Hér er nýjasta perlan frá meistara Mike Leigh og gagnrýnendur eru sammála um að þetta sé ein hans allra besta mynd.
Snillingurin Yimou Zhang lætur langþráðan draum rætast og endurgerir Blood Simple, meistaraverk Cohen bræðra.
Hér er á ferðinni kvikmynd sem á sér sennilega engan sinn líka; grínmynd um hryðjuverkamenn.
Sláandi heimildarmynd um áhrif ofveiði samtímans á höf heimsins. Hér er sýnt fram á að á næstu 50 árum gætu fiskistofnarnir þurrkast út.
Sérþjálfaðir og hátæknivæddir umhverfissinnar; afhjúpa ljótan sannleik í vík nokkurri í Japan. Vann Óskarinn í ár sem heilmdarmynd ársins.
Lesa meira Umræður Gallerý
Einstök heimildarmynd um tvo unga vini frá Póllandi sem ferðast um Ísland, heimsækja leikskóla, taka myndir og leita að draumi.
Hér eru afhjúpaðar nýstárlegar hugmyndir um þann flókna vef ólíkra þátta sem ákvarða heilsu okkar.
Lesa meira Umræður Gallerý
Heimildarmynd um hugmyndafræði og ansi sjokkerandi sögu svartþungarokkksins (black metal) í Noregi.
Ferðaleikhús gefur áhorfendum sínum mun meira en þeir áttu von á. Terry Gilliam leikstýrir Heath Ledger í sinnu síðustu mynd.
Eiginkona stríðsfréttaljósmyndara reynir að komast að því af hverju eiginmaður hennar sneri heim frá síðasta verkefni án kollega síns.
Vönduð mynd framleidd af Martin Scorsese um fyrstu ár Victoríu sem drottning en hún var krýnd 18 ára.
Colin Farrell leikur írskan sjómann sem bjargar konu á reki í sjónum. Hún kallar sig Ondine og virðist minnislaus. Neil Jordan leikstýrir.
Vönduð mynd með fjölda stórleikara um Leo Tolstoy og baráttu hans við að finna jafnvægið milli frægðar og ríkidæmis annars vegar og andúðar hans á efnisgæðum hins vegar.
Teymið á bak við Y tu mamá tambien sameinast í stórskemmtilegri mynd um bræður sem berjast á knattspyrnuvellinum.
Kröftug mynd um hermennina sem hafa það hlutverk að færa ættingjum fallinna hermanna slæmu fréttirnar. Woody Harrelson var tilnefndur til Óskarsverðlauna.
Bráðskemmtileg og hjartnæm bresk mynd um æsku John Lennonn. Tilnefnd til 4 Bafta verðlauna.
Snillingurinn Wes Anderson kemur hér með stórskemmtilega brúðumynd sem var tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna.
Sam Rockwell leikur Sam Bell, sem hefur verið aleinn og yfirgefinn í geimstöð nokkurri í hátt í þrjú ár og það er farið að taka sinn toll.
Lasse Hallström og Richard Gere gera hér einstaklega hjartnæma mynd byggða á sannri sögu um vináttu manns og hunds.
Ungir hugrakkir borgarar í Burma leggja líf sitt í í við gerð þessarar mögnuðu heimildarmyndar sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Sláandi heimildarmynd um forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, fjölmiðlaveldi hans og áhrif hvoru tveggja á ítalska menningu.
Jeff Bridges hlaut Óskarsverðlaun í þessari vönduðu mynd sem hefur rakað til sín verðlaunum og tilnefningum.
Lesa meira Umræður Gallerý
Harmony Korine er mættur aftur, nú með mynd um gamalt fólks sem riðlast á ruslagámum, eitthvað sem allir hafa beðið eftir, er það ekki?
Bráðfyndin mynd sem gerir grín að gömlu blaxploitation myndunum er á sama tíma sjálf ein slík.
Ungur arabi er sendur í franskt fangelsi þar sem hann kemst fljótt til mikilla valda. Var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin.
Meistari Michael Haneke kemur hér með svart hvítt meistarastykki sem tilnefnd var til tveggja Óskarsverðlauna.
Sláandi, stórkemmtileg og einkar fróðleg heimildarmynd um matvælavinnslu samtímans og áhrif hennar á líf okkar og heilsu.
Sigurvegari Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs heldur áfram í nokkra daga í Bíó Paradís vegna fjölda áskorana.
Ben Stiller fer á kostum í kolsvartri kómedíu eftir leikstjóra The Squid and The Whale.
Leikstjóri Irréversible kemur hér með nýja, ögrandi og gríðarlega metnaðarfulla mynd.
Tveir Bretar gera heimildarmynd um Ísland eftir hrun og sjá ekkert nema jákvæð og spennandi tækifæri.
Lesa meira Umræður Gallerý
Ótrúlegt samansafn leikara fer á kostum í nýjustu mynd Woody Allen, sem kom sá og sigraði á Cannes.
Ungur Dani er sendur í fangelsi fyrir ofbeldisglæp og lærir fljótt að lífið í dönskum fangelsum er ekki dans á rósum.
Ein mest sjokkerandi mynd allra tíma. Aðdáendur horror mynda halda ekki vatni. Alls ekki fyrir viðkvæma!
Einstök perla sem hefur heillað áhorfendur og gagnrýnendur um heim allan upp úr skónum.
Disney, BBC og Discovery snúa saman bökum og færa okkar stórbrotna kvikmynd þar sem fylgst er með þremur dýrafjölskyldum ferðast yfir jörðina okkar.
Lesa meira Umræður Gallerý
Frábær fjölskyldumynd sem kemur allir fjölskyldunni til að brosa, ef ekki skellihlæja. Langvinsælasta mynd ársins 2009 í Frakklandi og gagnrýnendur halda ekki vatni.
10 gæðamyndir frá fjórum löndum frumsýndar. Opnunarmyndin er fjölskyldumyndin Nikulás litli sem var vinsælasta myndin í Frakklandi á síðasta ári.
Ný kómedía frá Óskarsverðlaunahafanum Ang Lee, um strákinn sem óafvitandi skaut skjólshúsi yfir partý aldarinnar og einum mikilvægasta menningaratburði seinna tíma.
Mynd sem hefur farið mikla sigurför á kvikmyndahátíðum heims undanfarið og sigrað aðalverðlaun m.a. á Sundance, Toronto og San Sebastian.
Bráðskemmtileg heimildarmynd í anda Michael Moore um það hvernig sterar og notkun þeirra hafa tröllriðið vestrænni menningu.
Lesa meira Umræður Gallerý
Vönduð og eftirminnileg mynd um ungan dreng sem er sleppt úr haldi eftir áralanga fangavist og reynir að fóta sig aftur í samfélaginu.
Lesa meira Umræður Gallerý
Framhaldið af heimildarmyndinni um kókaínkúrekanna sem sló í gegn um allan heim fyrir nokkrum árum, þ.á.m. Bíódögum hérlendis.
Lesa meira Umræður Gallerý
Sönn saga um prófessor og uppfinningamann sem leggur til atlögu við allan bílaiðnaðinn eftir að einn bílarisinn stelur af honum byltingakenndri uppfinningu.
Lesa meira Umræður Gallerý
Lítil óháð perla um einstæða móður sem leiðist út í smygl á ólöglegum innflytjendum svo hún geti séð börnum sínum tveimur farboða.
Lesa meira Umræður Gallerý
Stórskemmtileg heimildarmynd um einstakan mann; einfarann, furðufuglinn og arkitektinn Michael Reynolds, sem berst gegn kerfinu fyrir þróun sjálfbærra húsa.
Lesa meira Umræður Gallerý
Hispurlaus frásögn úr innviðum ítölsku mafíunnar sem enn þann daginn í dag hefur mikil umsvif og svífst einskis.
Lesa meira Umræður Gallerý
Kraftmikil og sláandi mynd um síðustu 6 vikurnar í ævi IRA fangans Bobby Sands, sem leiddi hungverkfallið 1981.
Lesa meira Umræður Gallerý
Nýsleginn sigurvegari Óskarsverðlaunanna fjallar um línudansarann og götulistamanninn Philippe Petit sem framdi "listræna glæp aldarinnar" árið 1974.
Lesa meira Umræður Gallerý
Villt og tryllt heimildarmynd um ósagða sögu "OZPLOITATION" myndanna sem áttu það sameiginlegt að vera stútfullar af kynlífi, ofbeldi, hryllingi og hasar.
Lesa meira Umræður Gallerý
Nýjasta mynd Michael Moore þar sem við fylgjumst með honum ferðast milli 60 borga árið 2007 og halda fjöruga fyrirlestra í háskólum, eins og honum einum er lagið.
Lesa meira Umræður Gallerý
Amy Adams leikur einstæða móður sem á erfitt með að ná endum saman og afræður að stofna frekar sérstakt fyrirtæki með ansi óáreiðanlegri systu sinni (Emily Blunt).
Lesa meira Umræður Gallerý
Leikstjórinn James Gray og Joaquin Phoenix sameinast aftur eftir hina stórgóðu We Own the Night og fá hér til liðs við sig óskarsverðlauna-leikkonuna Gwyneth Paltrow.
Lesa meira Umræður Gallerý
Mögnuð þýsk mynd um metnaðarfullan kennara sem setur af stað tilraun um einræði í eina viku. Nemendurnir taka hlutina of alvarlega og fljótt er allt komið úr böndunum.
Lesa meira Umræður Gallerý
Bráðfyndin heimildarmynd um Will Shortz, krossgátumeistara New York Times, og stærsta árlega krossgátumótið, þar sem barist er til síðasta blóðdropa í krossgátuviðureignum.
Lesa meira Umræður Gallerý
Ótrúlega upplífgandi og skemmtileg heimildarmynd um "Young at Heart" kórinn sem samanstendur af eldri borgurum sem elska að syngja nútímaleg popp og rokklög.
Lesa meira Umræður Gallerý
Fyndnasta heimildarmynd síðari ára eru um miðaldra rokkara sem neita að láta drauminn um frægðina deyja. Þetta er Spinal Tap okkar tíma, nema hvað hér er enginn að leika.
Ótrúlega mögnuð heimildarmynd um hið sögufræga mál þegar Roman Polanski var árið 1977 kærður fyrir að hafa mök við 13 ára stúlku og gefa henni eiturlyf.
Mannleg mynd eftir Helga Felixson sem fjallar um afleiðingar hrunsins fyrir okkur öll, hvort sem þú heitir Eva norn eða Jón Ásgeir. Kaupa miða
Lesa meira Umræður Gallerý
Mögnuð og bráðskemmtileg heimildarmynd um hina goðsagnakenndu Önnu Wintour og gerð stærsta tímarits allra tíma. Miðar
Lesa meira Umræður Gallerý
Lars Von Trier tekst enn einu sinni að hneyksla, stuða og valda umræðu, núna með erótískri hryllingsmynd. Kaupa miða
Lesa meira Umræður Gallerý
Woody Allen og Larry David snúa bökum saman og afraksturinn getur ekki verið annað en stórkostlegur.
Lesa meira Umræður Gallerý
Nýjasta mynd Pedro Almodóvar skartar nýslegnum Óskarsverðlaunahafa Penélope Cruz í aðalhlutverkinu.
Kaupa miða
Michael Haneke endurgerir sýna eigin mynd í Bandaríkjunum, með Tim Roth, Naomi Watts og Michael Pitt í aðahlutverkunum. Ekki fyrir viðkvæma. Kaupa miða.
Lesa meira Umræður Gallerý
Frumleg mynd eftir Todd Haynes (Far from Heaven) þar sem sex leikarar túlka mörg andlit og æviskeið Bob Dylan. Aragrúi þekktra leikara fara á kostum. Kaupa miða
Lesa meira Umræður Gallerý
Nýja myndin frá Harmony Korine (Kids, Gummo, Julien Donky Boy) um Michael Jackson eftirhermu sem verður ástfangin af Marilyn Monroe eftirhermu.
Lesa meira Umræður Gallerý
Íslandsvinurinn Jamie Bell (Billy Elliot) fer á kostum í stórskemmtilegri mynd eftir leikstjóra Young Adam. Myndin hlut Silfurbjörninn á Berlín fyrr á árinu.
Lesa meira Umræður Gallerý
Frábær þýsk mynd, byggða á sönnum atburðum, um hóp af gyðingum í útrýmingarbúðum, sem árið 1936 eru sérvaldir af nasistum til að falsa erlenda gjaldmiðla.
Lesa meira Umræður Gallerý
Sláandi heimildarmynd um einn mesta barnaníðing sem sögur fara af; kaþólskan prest sem misnotaði óteljandi börn yfir 30 ára tímabil. Tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Lesa meira Umræður Gallerý
Mögnuð heimildarmynd, sem hefur farið sigurför um heiminn, um fólkið og atburðina sem urðu uppspretta og innblástur að myndum á borð við Scarface og Miami Vice.
Lesa meira Umræður Gallerý
Meistaraverk leikstýrt af John Hillcoat og skrifað af engum öðrum en Nick Cave! Magnaður og grípandi vestri um styrk fjölskyldubandanna.
Lesa meira Umræður Gallerý