Í bíó

Frönsk kvikmyndahátíð 2012

27. janúar - 11. febrúar í Háskólabíói

Frönsk kvikmyndahátíð í byrjun janúar hvers árs hefur fest sig rækilega í sessi sem fyrsti stóri menningarviðburður ársins. Árlega sækja hátt í 10 þúsund gestir Frönsku kvikmyndahátíðina og eru þeir orðnir vanir því að geta gengið að 10 gæðamyndum vísum.

Úrvalið hefur sjaldnar verið glæsilegra og ber þar hæst að nefna tvær margverðlaunaðar myndir sem hafa vakið mikla athygli um allan heim: Listamaðurinn sem er efst á blaði í flestum verðlaunatilefningum þessa dagana og Við stefnum í stríð eftir unga móður sem lendir í kröppum dansi og segir sögu sína  á hispurslausan hátt.

Gaman er frá því að segja að þrjár myndir til viðbótar á hátíðinni eru leikstýrðar af konum; franskur kvikmyndaiðnaður gengur í endurnýjun lífdaga, þökk sé þessum kvenleikstjórum sem láta hér ljós sitt skína.

Að hátíðinni standa Græna ljósið og Háskólabíó, Institut français, Alliance française í Reykjavík á samt sendiráðum Frakka og Kanada. Hátíðin í ár er dagana 27. janúar - 11. febrúar og þær 10 myndir sem sýndar verða eru eftirfarandi:

Listamaðurinn (The Artist) eftir Michel Hazanavicius - OPNUNARMYND
Stríðsyfirlýsing (La Guerre est déclarée) eftir Valérie Donzelli
Saman er einum of (Ensemble, c'est trop) eftir Léa Fazer
Faðir barna minna (Le Père de mes Enfants)  eftir Maia Hansen-Love
Það þarf aðeins einn til að stjórna og hinir fylgja (Qu'un seul tienne et les autres suivront) eftir Léa Fehner
Felustaðurinn (Le Refuge) eftir François Ozon
Hadewijch eftir Bruno Dumont
Sá sem kallar (Un Homme qui crie) eftir Mahamat Saleh Haroun (Tsjad)
Sérsveitin (Forces spéciales) eftir Stephane Rybojad
Öld myrkursins (L‘Age des Ténèbres) eftir Denis Arcand

Dagskrá og miðasala á Miði.is.



Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica