THE SECRET
The Secret á íslensku KOMIN Í VERSLANIR
Leyndarmálið fór eins og eldur um sinu um heimsbyggðina og allt byrjaði þetta á The Secret kvikmyndinni. Græna ljósinu er hinn íslenski dreifingaraðili myndarinnar. Vegleg íslensk útgáfa er fáanleg í helstu verslunum. Á diskinum er kvikmyndin í fyrsta skipti fáanleg með íslensku tali.
HVAÐ ER LEYNDARMÁLIÐ?
Leyndarmálið afhjúpar öflugasta lögmál alheimsins. Vissan um þetta lögmál var eins og rauður þráður í lífi og tækni allra fræðimanna, spámanna, spekinga og bjargvætta þessa heims, sem og í lífi margra merkismanna og -kvenna. Allt það sem þetta fólk hafði öðlast eða náð hafði það gert í fullkomnu samræmi við hið öfluga lögmál.
Án nokkurra undantekninga hefur sérhver manneskja getu til að breyta veikleika og þjáningu í styrk, kraft, fullkominn frið, heilsuhreysti og allsnægtir.
Rhonda Byrne uppgötvaði Leyndarmálið með því að koma auga á sannleikann í hundrað ára gamalli bók. Hún ferðaðist margar aldir aftur í tímann, eltist við og afhjúpaði sameiginlegan sannleika sem umlukti kjarna áhrifamestu spekinnar, tækni og trúarbragða heimsins og þess sem veitir mesta gleði og þakklæti í lífnu.
Þessi uppgötvun Rhondu Byrne birtist öllum í þessari kvikmynd, sem milljónir manna um allan heim hafa séð og Græna ljósið gefur nú út á íslensku innan skamms. Leyndarmálið hefur einnig verið gefið út sem hljóðbók og á prenti, í meira en 7 milljónum eintaka. Bókin koma út á íslensku fyrr árinu og hefur trónað á toppi sölulista svo til sleitulaust síðan hún kom út.
Leyndarmálið afhjúpar á einfaldan hátt það lögmál sem ræður gerðum okkar og býður okkur upp á að skapa okkur, á meðvitaðan og áreynslulausan hátt, hamingjuríkt líf. Þetta er Leyndarmálið að öllu. Leyndarmálið að ótakmarkaðri hamingju, ást, góðri heilsu og velfarnaði.
Þetta er Leyndarmálið að lífinu.

