Greinasafn
Rhonda Byrne: Höfundur og framleiðandi Leyndarmálsins
Sem höfundur og framleiðandi bæði bókar og kvikmyndar í fullri lengd um "Leyndarmálið" sýnir Rhonda Byrne vilja sinn til að gera öðrum kleift að lifa gleðiríku lífi.
Það var í síðari hluta september árið 2004 sem Rhonda uppgötvaði öruggt og óskeikult lögmál, sem er undirliggjandi í allri okkar tilveru. Hún varð furðu lostin þegar hún komst að því að þessar upplýsingar sem gætu valdið straumhvörfum í lífi fólks væru ekki betur þekktar og notaðar. Á þeim tímapunkti ákvað hún að einblína á að deila þessari þekkingu með öðrum jarðarbúum svo að milljarðar manna gætu gengið í gegnum öfluga breytingu og bætt líf sitt.
Rhonda hóf samstundis að beita og kynna sér betur þessa visku, sem varð síðar þekkt sem ,"Leyndarmálið". Hún kynnti sér verk mikilla viskubrunna; hugsuða, listamanna, vísindamanna, uppfinningamanna, fræðimanna og heimspekinga og sótti efnivið úr ólíkum áttum, t.d. úr skammtaeðlisfræði, frumspeki, sálfræði og trúmálum. Aftur og aftur varð hún vitni að því að þetta eina lögmál var eins og rauður þráður í lífi og tækni allra fræðimanna, spámanna, spekinga og bjargvætta þessa heims, sem og í lífi margra merkismanna og -kvenna. Án nokkurra undantekninga komst hún að því að allt það sem þetta fólk hafði öðlast eða náð hafði það gert í fullkomnu samræmi við hið öfluga lögmál.
Þar sem Rhonda var vel þekktur sjónvarps- og kvikmyndaframleiðandi fyrir, ákvað hún að nýta sér það sem hún hefði komist að og nota "Leyndarmálið" til að gera myndina "Leyndarmálið". Hún fékk til liðs við sig þá ráðgjafa sem hún taldi nauðsynlega svo að framleiðslan yrði líkt og áeynslulaust og skemmtilegt ævintýri. Og rúmlega ári síðar var "Leyndarmálið" opinberað almenningi. "Leyndarmálið" afhjúpar öflugasta lögmál heimsins og útskýrir hvernig hver sem er getur notfært sér lögmálið til að öðlast ótakmarkaða hamingju, ást, heilsu og velgengni í lífinu.
Milljónir manna hafa séð kvikmyndina "Leyndarmálið" frá því hún var frumsýnd í mars 2006. Bók Rhondu "Leyndarmálið" sem er fáanleg bæði á prenti og sem hljóðbók, hefur verið í efsta sæti á sölulistum í New York og hefur verið gefin út í meira en 7,5 milljónum eintaka. Bæði bókin og kvikmyndin "Leyndarmálið" hafa verið þýdd yfir á fjölmörg tungumál fyrir áhorfendur víða um heim. Rhonda og samstarfsfólk hennar hefur tekið á móti mörg hundruð þúsund þakkarbréfum, þar sem fólk þakkar fyrir að fá að eiga hlutdeild í leyndarmálinu. Og samkvæmt Rhondu, er þetta bara upphafið að því sem koma skal.
Rhonda fæddist í Ástralíu og hóf feril sinn sem framleiðandi útvarpsefnis. Skapandi stjórnunarhæfileikar hennar skiluðu sér í fjölmörgum afar vinsælum útvarpsþáttum. Rhonda gekk síðan til liðs við áströlsku sjónvarpsstöðina Nine network, þar sem hún vann við hlið eins virtasta leikstjóra landsins, Peter Faiman. Árið 1994 stofnaði Rhonda eigið framleiðslufyrirtæki, Prime Time Productions. Á meðal vinsælla þátta sem fyrirtækið framleiddi má nefna: "The Worlds Greatest Commercials", "Great Escapes", "OZ Encounters" og "Learners". Margt af hennar efni vann til verðlauna og var tekið til sýninga annars staðar en í Ástralíu. Reynsla og ferill Rhondu ásamt færni í framleiðslu á kvikmyndum og sjónvarpsefni skipti sköpum við gerð "Leyndarmálsins".
Þó að kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslufyrirtæki Rhondu hafi bækistöðvar í Ástralíu, þá hefur hún fært út kvíarnar og er, auk Melbourne, einnig með starfsemi í Chicago, Austin og Los Angeles þar sem unnið er að gerð nýrra og einstakra kvikmynda, bóka og hvers þess sem hvetur, lífgar upp á og umbyltir lífi fólks. Í maí 2007 setti TIME tímaritið hana á lista yfir þá hundrað áhrifamestu í heiminum í dag; "The TIME 100: The People Who Shape Our World" og skömmu síðar mátti finna nafn hennar á hundrað manna lista "fræga fólksins" sem Forbes sendi frá sér; "The Celebrity 100? list". Sem stendur er Rhonda búsett í nágrenni Los Angeles.

