Fréttir

GRÆNA LJÓSIÐ KOM, SÁ OG SIGRAÐI Á CANNES

Ber þar auðvitað fyrst að nefna sigurvegara hátíðarinnar, hina rúmönsku 4 MONTHS, 3 WEEKS AND 2 DAYS, sem hlaut Gullpálmann eftirsótta, æðstu verðlaun hátíðarinnar og þar að auki verðlaun samtaka gagnrýnenda. Sjá mátti vangaveltur strax eftir hátíðina í íslenskum fjölmiðlum og á netinu um það hvort þessi mynd yrði sýnd hérlendis og er það sérstakt ánægju efni að staðfesta hér með að Græna ljósið tryggði sér réttinn að þessir mynd í blábyrjun hátíðarinnar og hyggur á útgáfu hennar hérlendis við fyrsta tækifæri.

::: UM MYNDIRNAR
Þær myndir sem vöktu hvað mesta athygli á Cannes og Græna ljósið mun gefa út á næstunni eru þessar helstar:

4 MONTHS, 3 WEEKS, 2 DAYS
Myndin sýnir ógnvænlega lífreynslu ungrar konu og vinkonu hennar, þegar hún ákveður að láta framkvæma á sér ólöglega fóstureyðingu, í sóðalegu hótelherbergi í Rúmaníu, fyrir fall kommúnismans. Eins og áður sagði hlaut myndin æðstu verðlalun dómnefndar, sjálfan Gullpálmann og þar að auki verðlaun gagnrýnenda.
http://www.imdb.com/title/tt1032846/

SICKO
Nýjasta mynd Michael Moore, sem heldur hér uppteknum hætti og tekur fyrir grafalvarlegt mál á kómískum nótum. Nú er það bandaríska heilbrigðiskerfið sem fær að finna fyrir því enda er það ansi langt frá því að standast samanburð Moore við heilbrigðiskerfi Kúbu, hvað þá Evrópu. Það sem ber fyrir augu er bæði bráðfyndið og sjokkerandi. Fékk frábæra dóma á Cannes.

DIVING BELL AND THE BUTTERFLY
Julian Schnabel (Before Night Falls, Basquiat) fjallar hér um ævi Jean-Dominique Bauby, ristjóra Elle í Frakklandi, sem fékk hjartaáfall 43 ára að aldri sem skildi hann eftir lamaðan frá toppi til táar. Hlaut verðlaun dómnefndar á Cannes fyrir bestu leikstjórnina.

MY BLUEBERRY NIGHTS
Opnunarmynd hátíðarinnar og fyrsta mynd hins gríðarlega virta leikstjóra Wong Kar Wai á ensku. Með aðalhlutverkið fer væntanlegur Íslandsvinur, Norah Jones, í sínu fyrsta kvikmyndahlutverki, ásamt stórstjörnunum Jude Law, Natalie Portman, Tim Roth, Rachel Weisz og David Strathairn.

ORPHANAGE
Magnaður spænskur sálfræðitryllir, framleiddur af leikstjóra Pan's Labyrinth. Fékk frábæra dóma og er spáð mikilli velgengi um allan heim.

PERSEPOLIS
Svart hvít írönsk teiknimynd byggð á samnefndum sjálfsævisögum Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna. Með aðalhlutverkin fara Iggy Pop, Gena Rowlands, Catherine Deneuve o.fl. Hlaut "Jury Prize" verðlaunin á Cannes.

TERROR'S ADVOCATE
Heimildarmynd eftir þungavigtarleikstjórann Barbet Schroeder (Single White Female, Barfly, Reversal of Fortune) um lögræðinginn Jacques Vergés, manninn tekur að sér að verja alla verstu skúrka heims, þar á meðal Mao Tse Tung, Slobodan Milosevic og Saddam Hussein. Hlaut frábæra dóma og vakti mikið umtal á Cannes.

PROMISE ME THIS
Nýjasta snilldarmyndin frá Íslandsvininum Emir Kusturica. Fékk mjög góðar viðtökur á Cannes og voru margir gagnrýnendur á því að hér sé á ferðinni ein af hans allra bestu myndum.

ALEXANDRA
Nýjasta mynd hins virta leikstjóra Alexander Sokurov. Hér sýnir hann afleiðingar stríðs án þess að sýna einn einasta bardaga. Óperugoðsögnin Galina Vishnevskaya sýnir sannkallaðan stórleik í aðalhlutverkinu.

REBELLION: THE LITVINENKO CASE
Sláandi heimildarmynd um morðið á rússneska njósnaranum Alexander Litvinenko og varpar nýju ljósi á ástæður morðsins og tengsl Putins við málið. Leikstjórinn Andrei Nekrasov sem var góðvinur Litvinenko, elti hann í rúmlega 5 ár og tók upp allt sem gerðist á þessum tíma, frá flótta hans frá Rússland til London, allt til hans síðasta andardrátts. Ekki var tilkynnt um myndina fyrr en miðja hátíð, því það átti eftir að koma filmunni til Cannes og stjórnendur hátíðarinnar voru hræddir um að ef tilkynnt yrði um myndina áður en það kæmist á leiðarenda myndu háttsettir aðilar í Rússlandi stöðva flutningana og gera filmuna upptæka.

::: AÐ LOKUM
Innan skamms verður tilkynnt nánar um útgáfu allra þessara mynda og áhugasömum er bent á að fylgjast vel með á heimasíðu Græna ljóssins. Að sjálfsögðu munum meðlimum í Bíóklúbbi Græna ljóssins gefast tækifæri til að sjá þessar myndir ókeypis og fyrstir af öllum.

Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig



Þetta vefsvæði byggir á Eplica