Fréttir

BÍÓKLÚBBNUM BOÐIÐ Á LYNCH

Græna ljósið frumsýnir næsta föstudag nýjustu kvikmynd meistara DAVID LYNCH. Kallast hún INLAND EMPIRE (STURLAÐ STÓRVELDI) og er það góðvinkona Lynch, LAURA DERN, sem fer með aðahlutverkið. Gagnrýnendur hafa keppst við að hlaða hana lofi fyrir einstaka frammistöðu í myndinni og sagði gagnrýnandi TV Guide að það væri "ólíklegt að nokkur önnur leikkona toppaði hana á næstunni." Með önnur aðahlutverk fara Jeremy Irons, William H. Macy, Harry Dean Stanton og Diane Ladd. Myndin er sýnd í Regnboganum.

::: MIKIL EFTIRVÆNTING
Eins og venjulega þegar um nýja mynd eftir Lynch er að ræða hefur Inland Empire verið beðið með þó nokkurar eftirvæntingar hjá stórum hópi fólks hérlendis. Þegar ljóst varð að Græna ljósið hafði tryggt sér sýningarréttinn að henni fór strax að rigna yfir okkur fyrispurnum frá vefsíðunni hvenær hún yrði frumsýnd og biðin greinilega erfið aðdáendum Lynch.

Víða um bæinn hefur frést af ýmsum uppákomum í tilefni frumsýningarinnar. Í Nexus verður til að mynda sértilboð á DVD og bókum eftir Lynch eða tengdum honum. Í Aðalvideleigunni er búið að koma upp sérstöku Lynch horni, þar sem má finna hverja einustu mynd kappans frá öllum ferlinum og svo mætti lengi telja.

::: ÓKEYPIS Í BÍÓ FYRIR BÍÓKLÚBBINN
Félagar í Bíóklúbbi Græna ljóssins verður boðið á Inland Empire alla frumsýningarhelgina. Á frumsýningardag, næsta föstudag 27. apríl, fá þeir sem eru skráðir meðlimir sendan tölvupóst með kóða sem gildir á www.midi.is og gerir þeim kleift að verða sér út um 2 boðsmiða á myndina. Kóðinn mun gilda á hvaða sýningu sem er föstudag, laugardag og sunnudag, en takmarkað magn boðsmiða verður í boði á hverja sýningu. Fyrstir koma fyrstir fá.

Það er því um að gera fyrir áhugasama að skrá sig í Bíóklúbbinn fyrir næsta föstudag. Skráning í Bíóklúbbinn fer fram hér



0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica