Fréttir

KVIKMYNDAHÁTÍÐ HEIMA Í STOFU

Græna ljósið og SkjárBíó hafa tekið höndum saman og munu bjóða áhorfendum upp á kvikmyndahátíð sem á sér enga hliðstæðu í heiminum. 10 nýjar myndir frá öllum heimshornum verða Íslandsfrumsýndar.

Boðið verður upp á 10 frábærar óháðar kvikmyndir frá öllum heimshornum og er um Íslandsfrumsýningu að ræða í öllum tilfellum þar sem þessar einstöku myndir hafa hvorki verið sýndar í kvikmyndahúsum né verið í boði á myndbandaleigum hér á landi eða annars staðar.

Kvikmyndahátíðin hefst 15. mars og myndirnar 10 verða í boði í SkjárBíó í einn mánuð. Myndirnar tíu eiga rætur að rekja til að minnsta kosti jafnmargra landa og eru eins ólíkar og þær eru margar. Myndirnar koma frá Danmörku, Þýskalandi, Svíþjóð, Bandaríkjunum, Tælandi, Japan, Íran, Frakklandi, Spáni og Holland. Meðal myndanna eru t.d. nýjusta myndir virtra leikstjóra á borð við Lukas Moodysson (Lilja 4-ever, Tilsammans, Hole in My Heart) og Thomas Vinterberg (Festen). Meðal þekktra leikara sem koma fram í myndunum eru Macauly Culkin, Chloe Sevigny, Marilyn Manson, Danny Glover, Willem Dafoe, Jamie Bell og Bill Pullman.

Myndirnar tíu eru:
OFFSIDE
LAST LIFE IN THE UNIVERSE
LOW PROFILE
MANDERLAY
MYSTERIOUS SKIN
FUHRER EX
DEAR WENDY
PARTY MONSTER
CONTAINER
QUINCEANERA

Aðalmynd hátíðarinnar er RANGSTAÐA (Offside). Hér er á ferðinni splunkuný írönsk grínmynd frá Jafar Panahi. Hún fjallar um hóp kvenna sem reynir að smygla sér inn á knattspyrnuleik í gervi karlmanna, en konum er meinaður aðgangur að knattspyrnuvöllum í Íran. Myndin vann silfurbjörninn í Berlín árið 2006 og verður gefin út í Bandaríkjunum þann 23. mars, viku eftir að hún er frumsýnd í SkjáBíó.

SkjárBíó hefur frá upphafi lagt áherslu á að bjóða upp á úrval vandaðra óháðra og listrænna mynda, til dæmis frá Græna ljósinu. Það er greinilega mikill áhugi fyrir þessum myndum hjá áhorfendum SkjásBíós því þær hafa leigst mjög vel. Græna ljósið er eini aðilinn á Íslandi sem sérhæfir sig í dreifingu slíkra mynda og heldur úti reglulegri útgáfu þeirra hérlendis.

Græna ljósið og SkjárBíó hyggja á áframhaldandi samstarf og hver veit nema KVIKMYNDAHÁTÍÐ HEIMA Í STOFU verði árviss atburður og festi sig í sessi í menningarlífi landsmanna.

Þess má til gamans geta að "pásu" takkinn á VOD fjarstýringunni mun virka eftir sem áður á kvikmyndahátíðinni heima í stofu, þannig að landsmenn geta ráðið því sjálfir hvort og þá hversu mörg hlé þeir taka á myndunum ;)

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica