Fréttir

ÞRJÁR MYNDIR Á FRANSKRI HÁTÍÐ

Græna ljósinu er það mikil ánægja að taka þátt í franskri hátið með svo afgerandi hætti. Hátíðin er orðinn árviss atburður í menningarlífi landsmanna og mikill sómi að henni.

Í þetta sinn verður boðið upp á 35 franskar kvikmyndir af ýmsum toga og má nefna að hin fræga leikkona Isabelle Huppert leikur í 9 myndum. Í tengslum við kvikmyndahátíðina verður svo sýning á 17 portrettljósmyndum af leikkonunni eftir ýmsa franska ljósmyndara (Carole Bellaiche, Edouard Boubat, Ronald Chammah, Roger Corbeau, Robert Doisneau, Claude Gassian, Jean-Henri Lartigue?). Sýningin verður einnig haldin í Háskólabíói.

Paris Je T'aime er opnunarmyndin; óður til Parísarborgar; safn stuttmynda eftir virtustu leikstjóra heims og á hver þeirra rætur að rekja til eins hverfis borgarinnar.

Hors De Prix er splunkuný rómantísk gamanmynd með Audrey Tatou, sem gerði garðinn frægan í Amelie og Da Vinci Code. Myndin var frumsýnd í Frakklandi í janúar og Ísland er eitt fyrsta landið í heiminum til að frumsýna myndina utan heimalandsins. Myndin verður til að mynda frumsýnd vestra í apríl.

The Science of Sleep verður lokamynd hátíðarinnar; einstök, súrrealísk og stórskemmtileg mynd eftir Michaael Gondry (Eternal Sunshine of the Spotless Mind) með íslandsvininum Gael Garcia Bernal í aðahlutverki.

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica