Fréttir
Græna ljósið skín í Berlín
Græna ljósið er nýkomið frá Kvikmyndahátíðinni í Berlín, þar sem það keypti um 10 nýjar og spennandi kvikmyndir til sýningar hérlendis.
Fyrst ber að nefna umtöluðustu og heitustu mynd hátíðarinnar; Where in the World is Osama Bin Laden? eftir Morgan Spurlock sem sló í gegn með Super Size Me. Eins og nafnið gefur til kynna tekur hann fyrir í þetta skiptið, ekki hamborgara, heldur hryðjuverk og hefur leit að eftirsóttasta manni jarðar. Eins og búast má við þegar Spurlock á í hlut eru afleiðingarnar allt í senn fróðlegar, sjokkerandi og bráðfyndnar.
Myndin er ekki tilbúin ennþá. Þessa dagana er unnið hörðum höndum að því að klára hana fyrir Cannes í maí. Græna ljósið fór á lokaða kynningu á hótelsal í Berlín þar sem Spurlock sjálfur kynnti myndina og sýndi úr henni valin brot. Spurlock var frekar tættur; grannur, grár og gugginn og kominn með sítt skegg að hætti múslima. Græna ljósið kvittaði undir ógurlegt skjal sem bannaði því að segja frá því hvað nákvæmlega fór fram á þessari kynningu og skal því staðar numið hér, en óhætt er að lofa einstaklega magnaðri mynd.
Eftir kynninguna varð myndin sú umtalaðasta og sú heitasta á hátíðinni. Dreifingaraðilar um allan heim kepptust við að kaupa myndina og seldist hún um allan heim, víðast hvar fyrir mun hærri upphæðir en t.d. Fahrenheit 9/11 eftir Michael Moore, sem er langtekjuhæsta heimildarmynd sögunnar...hingað til.
Aðrar myndir sem Græna ljósið tryggið sér sýningarréttinn á eru meðal annars:
EL ORFANATO (THE ORPHANAGE)
Spennu/hryllingsmynd framleidd af Guillermo Del Toro, höfund Pan's Labyrinth.
TERROR'S ADVOCATE
Heimildarmynd eftir Barbet Schroeder um lögfræðinginn sem tekur að sér alla mestu skúrka heims; málin sem enginn vill taka og mennina sem eru taldir óverjandi, þar á meðal Saddam Hussein o.fl.
UNTITLED PATTI SMITH PROJECT
Eina heimildarmyndin sem vinkona Græna ljóssins, Patti Smith, hefur samþykkt að taka þátt í. Tökur hafa staðið yfir í sex ár.
PERSEPOLIS
Teiknimynd byggð á sjálfsævisögum hinnar írönsku Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna. Með aðalhlutverk fara Iggy Pop o.fl.
Opinber heimasíða
MISTER LONELY
Nýja myndin frá Harmony Korine, höfund Kids og Gummo. Aðalsöguhetjan er Michael Jackson (Diego Luna) eftirherma sem verður ástfangin af Marilyn Monroe eftirhermu (samantha Morton). Korine hafði á tímabili í huga að skjóta myndina á Íslandi.
LA VIE EN ROSE
Stórbrotin mynd um ævi Edith Piaf. Var opnunarmyndin í Berlín og stórkostleg frammistaða aðalleikkonurnar setti strax af stað tal um Óskarsverðlaun árið 2008!
WHITE TUFT
Heillandi náttúrulífsmynd í anda meistarstykkisins Ferðalag keisaramörgæsanna.


0 Athugasemd