Fréttir
NOTES ON A SCANDAL 16. FEBRÚAR
Fjórða mynd ársins frá Græna ljósinu er Notes on a Scandal (Glósur um skandal) eftir Ricard Eyre (Stage Beauty, Iris). Tvær af fremstu leikkonum heims, óskarverðlaunahafarnir Judi Dench og Cate Blanchett sýna eftirminnilegan stórleik í mynd sem hefur verið hlaðin hlofi undanfarið og hlotið fjölda tilnefninga til hinna ýmsu verðlauna. Myndin verður frumsýnd 16. febrúar í Smárabíói og Regnboganum.
Myndin hlaut á dögunum m.a. fjórar tilnefningar til Óskarsverðlauna fyrir eftirfarandi:
- Besta leikkona í aðahlutverki; Judi Dench
- Besta leikkona í aukahlutverki; Cate Blanchett
- Besta handrit byggð á áður útgefnu efni; Patrick Marber
- Besta frumsamda tónlistin; Philip Glass
Myndin var auk þess tilnefnd til þriggja Golden Globe verðlauna og þriggja BAFTA verðlauna; þar á meðal sem besta myndin.
::: FRÁBÆRIR DÓMAR
Gagnrýnendur halda ekki vatni og hérna eru nokkur dæmi:
"Ef þú vilt hafa myndirnar þínar sterkar, þá er þessi ómissandi."
- Ruthe Stein, San Francisco Chronicle
"Samleikur Dench og Blanchett gerir hverja einustu senu magnþrungna, þökk sé fullkomnu handriti og sterkri leikstjórn."
- Justin Chang, Variety
"Allt við Notes on a Scandal er rafmagnað!"
- Rex Reed, The New York Observer
"Rosaleg...spennan er miskunnarlaus!"
- David Denby, The New Yorker
"Flottasta leikarapar ársins!"
- Richard Roeper, Chicaco Sun-Times
::: GULLNU REGLURNAR VIÐ LÝÐI
Eins og alltaf munu Gullnu reglur Græna ljóssins verða í heiðrI hafðar við allar sýningar á Notes on a Scandal. Reglurnar eru:
1. Ekkert hlé. Myndin sýnd í einum rykk.
2. Minna af auglýsingum. Sýning myndarinnar byrjar fyrr.
3. Engin truflun. Miðasölu lýkur þegar sýning myndar hefst.
::: AÐ LOKUM
NOTES ON A SCANDAL (Glósur um skandal) verður eins og áður sagði frumsýnd 16. febrúar í Smárabíói og Regnboganum.
Allar nánari upplýsingar hjá undirrituðum og á svæði myndarinnar á nýrri heimsíðu.
Skráðir meðlimir í Bíóklúbbi Græna ljóssins geta spjallað um myndina á vefsíðu Græna ljóssins og eiga þess ennfremur kost að sjá hana á undan öllum öðrum á sérstakri póstlistaforsýningu.

