Fréttir

PAN'S LABYRINTH FRUMSÝND 9. FEBRÚAR

SEX ÓSKARSVERÐLAUN OG 8 BAFTA TILNEFNINGAR

Þriðja mynd ársins frá Græna ljósinu er PAN'S LABYRINTH (El Laberinto del Fauno) eftir Guillermo del Toro.

Myndin fer um þessar mundir ótrúlega sigurför um heiminn og hefur upplýsinga um sýningar hennar hérlendis verið beðið með nokkurrri eftirvæntingu hjá stórum hópi fólks. Það er ánægjulegt að geta staðfest hér með að hún verður frumsýnd 9. febrúar í Regnboganum. Myndin er á spænsku og verður sýnd með íslenskum texta.

Myndin hlaut á dögunum sex tilnefningar til Óskarsverðlauna fyrir eftirfarandi:
- Besta erlenda mynd ársins
- Frumsamið handrit
- Listræna stjórnun
- Myndatöku
- Förðun
- Frumsamda tónlist

Myndin var auk þess tilnefnd til Golden Globe verðlauna sem besta erlenda myndin, hlaut 8 BAFTA tilnefningar og er mikið eftirlæti gagnrýnenda. Hún er á yfir 130 topp 10 listum helstu gagnrýnenda heims og á síðunni Metacritic er hún efst nýrra mynda fyrir árið 2006, en þar fær hún hvorki meira né minna en 98 í einkunn af 100. Hún er auk þess í 4. sæti á síðunni yfir bestu myndir allra tíma.

PAN'S LABYRINTH (El Laberinto del Fauno) verður frumsýnd 9. febrúar í Regnboganum.

::: NÝ HEIMASÍÐA OPNUÐ OG NÝR BÍÓKLÚBBUR ÞAR MEÐ STOFNAÐUR
Í dag var opnuð ný og glæsileg heimasíða Græna ljóssins. Síðunni er ætlað að verða lifandi samfélag kvikmyndáhugamanni á Íslandi og þeir sem gerast meðlimir í BÍÓKLÚBBI GRÆNA LJÓSSINS, sem er stofnaður með opnun síðunnar, fá að henni aukinn aðgang og munu bjóðast ýmiss spennandi tækifæri.

Meðlimir geta t.d. spjallað um allar myndirnar og stungið upp á kvikmyndum til að gefa út hérlendis. Nöfn þeirra munu þar að auki bætast á á póstlista Græna ljóssins sem þýðir að þeir munu fá forgang á öll tilboð og uppákomur á vegum Græna ljóssins; til að mynda mun þeim bjóðast að sjá allar myndir frá Græna ljósinu á sérstökum póstlistaforsýningum áður en almennar sýningar hefjast.

Að auki eru auðvitað upplýsingar um dagskrá Græna ljóssins og ítarlegar upplýsingar um hverja einustu kvikmynd Græna ljóssins, hvort sem um ræðir eldri, nýjar myndir í sýningu eða væntanlegar. Þarna geta áhugasamir alltaf séð fyrstir af öllum hvaða myndir Græna ljóssins er að verða sér úti um til að sýna á Íslandi.

::: GULLNU REGLURNAR VIÐ LÝÐI
Eins og á öllum sýningum Græna ljóssins munu Gullnu reglurnar verða í heiðrI hafðar við allar sýningar á PAN'S LABYRINTH. Reglurnar eru:

1. Ekkert hlé. Myndin sýnd í einum rykk.
2. Minna af auglýsingum. Sýning myndarinnar byrjar fyrr.
3. Engin truflun. Miðasölu lýkur þegar sýning myndar hefst.

Reglunum var hleypt af stokkunum með fyrstu frumsýningunni þann 5. janúar og óhætt að segja að þær hafi fallið í góðan jarðveg hérlendis.

::: AÐ LOKUM
PAN'S LABYRINTH (El Laberinto del Fauno) verður eins og áður sagði frumsýnd 9. febrúar í Regnboganum.



0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica