Fréttir

LITTLE CHILDREN FRUMSÝND 26. JANÚAR

SLÁANDI MYND FRÁ LEIKSTJÓRA IN THE BEDROOM

Ákveðið hefur verið að önnur mynd Græna ljóssins á þessu ári verði Little Children eftir Todd Field, leikstjóra In The Bedroom.

Kate Winslet sýnir sannkallaðan stórleik í myndinni, ásamt Patrick Wilson og Jennifer Connelly og gagnrýnendur hafa hlaðið myndina lofi undanfarið. Hafa þeir lýst henni sem sláandi og innihaldsríku meistaraverki, sem maður getur ekki hætt að hugsa um og virðast menn vera nokkuð sammála um að með myndinni sanni Todd Field sig, sem einn allra færasti og mikilvægasti leikstjóri Bandaríkjanna um þessar mundir. Myndin hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga og ber þar hæst þrjár tilnefningar til Golden Globe verðlauna; fyrir bestu mynd, bestu leikkonu í aðahlutverki og besta handrit.

Í myndinni skoðar Todd Field þá bresti sem liggja undir spegisléttu yfirborðinu í úthverfum millistéttarinnar. Sagðar eru nokkrar samhliða sögur úr velmegandi litlu hverfi þar sem líf nokkura einstaklinga skarast á leikvöllum, sundlaugum og götum þeirra smávaxna samfélags, á óvæntan og jafnvel hættulegan hátt.

LITTLE CHILDREN verður frumsýnd 26. janúar í Laugarásbíói og Regnboganum.

::: GULLNU REGLURNAR VIÐ LÝÐI
Eins og á öllum sýningum Græna ljóssins munu Gullnu reglurnar verða í heiðrI hafðar við allar sýningar á LITTLE CHILDREN.
Reglurnar eru:

1. Ekkert hlé. Myndin sýnd í einum rykk.
2. Minna af auglýsingum. Sýning myndarinnar byrjar fyrr.
3. Engin truflun. Miðasölu lýkur þegar sýning myndar hefst.

Reglunum var hleypt af stokkunum með fyrstu frumsýningunni þann 5. janúar og óhætt að segja að þær hafi fallið í góðan jarðveg hérlendis. Gríðarlega góð aðsókn hefur verið á þá mynd og hefur rignt inn þökkum til Græna ljóssins fyrir þetta framtak.

::: UMSAGNIR GAGNRÝNENDA
Eins og áður sagði halda gagnrýnendur ekki vatni yfir LITTLE CHILDREN og eru hér nokkur dæmi um umsagnir þeirra:

"Besta mynd ársins. Kate Winslet og Patrick Wilson eru stórbrotin."
- Leonard Maltin, ET

"Sláandi áhrifarík, innihaldsrík og það sem meira er, stórskemmtileg mynd."
- David Denby, The New Yorker

"Meistaraverk. Einstök og óviðjafnanleg frá upphafi til enda."
- Michael Philips, Chicago Tribune

"Ógleymanleg. Todd Field er leikstjóri af guðs náð."
- Joe Morgenstern, The Wall Street Journal

"Fullt hús. Kate Winslet er stórkostleg."
- Leah Rozen, People Magazine

"Ótrúlega góð mynd. Todd Field sannar sig sem mikilvægasti kvikmyndargerðarmaður Bandaríkjanna. Ögrandi og aðgengileg mynd sem þú munt ekki geta hætt að hugsa um."
- A.O. Scott, The New York Times

::: AÐ LOKUM
Myndin verður eins og áður sagði frumsýnd 26. janúar í Laugarásbíói og Regnboganum.

Allt um myndina

Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig



Þetta vefsvæði byggir á Eplica