Fréttir
PARIS JE T'AIME FRUMSÝND
Meistaraverk eftir 20 leikstjóra
Græna ljósið frumsýnir kvikmyndina PARIS JE T'AIME í Regnboganum. Hér er á ferðinni heillandi meistaraverk sem sameinar fjöldan allan af þekktum leikstjórum og leikurum frá öllum heimshornum í samansafni af stuttmyndum sem eiga það sameiginlegt að vera óður til Parísarborgar. Hver stuttmynd er 5 mínútur og gerist í einu af 18 hverfum Parísarborgar, allar fjalla þær um ástina og rómantík, hver með sinn stíl og á undraverðan hátt, mynda þær eina sterka heild.
PARIS JE T'AIME var sýnd í örfá skipti á IFF 2006 og fékk þar gríðarlega sterk og jákvæð viðbrögð. Gagnrýnendur voru yfir sig hrifnir sem og almenningur og í kjölfar sýninganna rigndi inn áskorunum og fyrirspurnum um áframhaldandi sýningar. Það er því mikið gleðiefni að geta orðið við þessum óskum og boðið Íslendingum upp á þessa frábæru mynd á almennum sýningum í Regnboganum innan skamms.


0 Athugasemd