Fréttir

WORLD'S FASTEST INDIAN FRUMSÝND

FEEL-GOOD MYND ÁRSINS, HOPKINS SÝNIR STÓRLEIK

"Ein sætasta mynd ársins. Anthony Hopkins hittir alltaf á réttu nóturnar og leikur skemmtilegasta furðufugl ársins." - Roger Ebert, Ebert & Roeper
"Það er unun að fylgjast með Anthony Hopkins í þessari hlýlegu mynd." - Leonard Maltin, Entertainment Tonight

Græna ljósið frumsýnir næsta fimmtudag, 9. mars, myndina WORLD'S FASTEST INDIAN. Myndin skartar sjálfum Óskarsverðlaunahafanum Anthony Hopkins í aðahlutverkinu og eru gagnrýnendur sammála um að það geisli af honum í ótrúlega skemmtilegu hlutverki og hér sá ferðinni eina albesta frammistaða hans magnaða leikferils.

SAGAN UM BURT MUNROE

Myndin er byggð á sönnum atburðum og fjallar um Burt Munro, mann sem gefur æskudrauminn aldrei upp á bátinn. Hopkins leikur þennan sérvitra en elskulega mann og kvikmyndin fangar Munro í öllu sínu veldi, staðfestu hans, frumleika, persónutöfra og sérvisku og allt er þetta sýnt með auga leikstjóra sem þekkti manninn persónulega og hefur lengi látið sig dreyma um að kvikmynda sögu hans.

Eftir að hafa eytt ævinni í að fullkomna klassíska Indian-mótorhjólið sitt, heldur Burt af stað frá Nýja-Sjálandi til Bandaríkjanna, með fyrir augum að láta reyna á hjólið og hversu hratt það kemst á saltsléttunni í Bonneville í Utah og etja þar kappi við hraðskreiðustu ökuþóra heims. Ólíkt öðrum keppendum, þá hefur hann hvorki fjármuni né aðstoðarmenn og fær hverki stuðning né skilning. Hann mætir gríðarlegu mótlæti og mikilli vantrú, en lætur sér ekki segjast og öllum að óvörum setur hann nýtt heimsmet í hraða. Ótrúlegt en en satt, þá hefur heimsmet Burts Munro frá árinu 1967 ekki ennþá verið slegið og því lifir minning hans góðu lífi.

::: UM MYNDINA - 30 ÁRA DRAUMUR RÆTIST

Leikstjórinn Roger Donaldson sem sló í gegn í Hollywood með myndum á borð við The Recruit, Thirteen Days, The Getaway, Cocktail og No Way Out er sjálfur frá Nýja-Sjálandi og hefur dreymt um að gera þessa kvikmynd í 30 ár. Þegar hann var að stíga sín fyrstu spor í kvikmyndagerð vann hann við heimildarmyndina Offerings to the Gods of Speed og kynntist þar Burt Munroe. Kolféll hann bæði fyrir manninum og magnaðri sögu hans. Leiðir Donaldson og Hopkins lágu fyrst saman fyrir um 20 árum er þeir gerðu myndina The Bounty með Mel Gibson. Þeir létu helsta draum ævi sinnar rætast með því að sameinast um gerð World's Fastest Indian og það sést þegar horft er á myndina; lífsgleðin skín af tjaldinu og áhorfendur labba út úr bíósalnum með bros allan hringinn. Eða eins og Jack Matthews, gagnrýnandi New York Daily News orðaðið það:

"Það er unun að fylgjast með Hopkins, sem er hér í einu sínu besta og eftirminnilegasta hlutverki. Það stafar meiri gleði frá honum en nokkrum öðrum leikara. Leikurinn kemur djúpt úr iðrum hans, fram hjá geislandi brosinu og hneggjandi hlátrinum og brýst út í gríðarlega áþreifanlegum persónuleika. Það hefur sjaldan verið skemmtilegra að horfa á eina kvikmynd til enda."

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica