Fréttir

CACHÉ SLÆR Í GEGN Á FRANSKRI HÁTÍÐ

SÝND ÁFRAM FRÁ 3. FEBRÚAR VEGNA FJÖLDA ÁSKROANA

BESTA MYND EVRÓPU 2005, kvikmyndin CACHÉ eftir Michael Heneke, sló í gegn svo um munaði á Franskri kvikmyndahátíð sem lýkur 30. janúar. Áætlað var að sýna myndina aðeins þrisvar sinnum, en vegna mikilla vinsælda var bætt við auksýningu 29. janúar. Það fór eins með hana og hinar sýningarnar, fullt var út úr dyrum og færri komust að en vildu. Í heildina hafa á annað þúsund manns séð myndina, en fjöldinn takmarkaðist einfaldlega af stærð salanna sem myndin var sýnd í á þessum fjórum sýningum. Þýðir þetta að CACHÉ er aðsóknarhæsta mynd Franskrar hátíðar.

Vegna þessara miklu vinsælda og vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að sýna myndina áfram. Senda átti filmuentakið úr landi strax eftir hátíðina en náðst hefur að semja um að halda því lengur hérlendis. Næsta föstudag, 3. febrúar, fer hún í almennar sýningar í Háskólabíóii og verður sýnd þar í a.m.k. 10 daga í viðbót.

Myndin hefur hlotið frábæra dóma hjá íslenskum gagnrýnendum, þar á meðal hjá Morgunblaðinu. Dómurinn birtist hér að neðan í heild sinni.

DÓMUR MORGUNBLAÐSIS UM CACHÉ

Fimmtudaginn 26. janúar, 2006 - Kvikmyndir

KVIKMYNDIR - Háskólabíó: Frönsk kvikmyndahátíð

Undir eftirliti

Falinn (Caché)
-Leikstjórn: Michael Haneke. Aðalhlutverk: Daniel Auteuil, Juliette Binoche. 117 mín. Frakkland 2005.

Leikstjórinn "hefur einkar gott lag á að segja ekki of mikið, kryddar þó myndmálið með örfáum, en ofur kraftmiklum ofbeldisatriðum".

UPPHAFSATRIÐIÐ er engu öðru líkt. Myndavélinni er stillt upp andspænis íbúðarhúsi í París og hún haggast ekki mínútum saman. Bílar þjóta hjá, fólk kemur og fer. Fljótlega fær maður á tilfinninguna að ekki sé allt með felldu, sú annarlga hugsun verður æ sterkari að maður sé ekki áhorfandi heldur standi aftan við mann og gómi áhorfandann á gægjum. Síðan kemur sannleikurinn í ljós: Við erum að horfa á myndband ásamt hjónunum George (Auteuil) og Anne (Binoche), íbúum hússins, sem fengu það sent heim. Einhver er að fylgjast með þeim, eða hvað? Grunur þeirra reynist réttur, þau fá annað myndband ásamt óhugnanlegri teikningu, það er markvisst verið að hræða þau og lögreglan hefur ekkert í höndunum og leikurinn æsist.

Fyr en varir er fastmótað millistéttarlíf hjónanna í uppnámi, það er ljóst að sendandinn hefur þekkt Georges lengi, því eitt myndbandið sýnir bernskuheimili hans úti á landsbyggðinni. Georges fer að kanna málin upp á eigin spýtur án þess að komast til botns í þessari óviðkunnanlegu atburðarás.

Ekki bætir úr skák að Pierrot (Lester Makedonsky), 12 ára gamall sonur þeirra, er sigldur inn í uppreisnarástand gelgjuskeiðsins og hegðun hans gerir foreldrunum aðeins enn erfiðara fyrir.

Caché er eitt þeirra verka sem virkja ímyndunarafl áhorfandans, sem fær einungis takmarkaðan stuðning hjá leikstjóranum/handritshöfundinum Michael Haneke. Hann hefur einkar gott lag á að segja ekki of mikið, kryddar þó myndmálið með örfáum, en ofur kraftmiklum ofbeldisatriðum þar sem uppsöfnuð reiði og hatur bullar upp á yfirborðið í orðsins fyllstu merkingu.

Í aðra röndina fjallar Caché um feluleiki í hversdagslífinu, þau Georges og Anne, hin dæmigerðu, vammlausu millistéttarhjón sem virtust alsæl, slétt og felld í upphafi, mega ekki við mikilli nærskoðun þegar allt kemur til alls. Reyndar er það Georges sem er berskjaldaðri en það má ekki gefa of mikið upp um framvinduna á og  handan tjaldsins, myndin er sjónræn upplifun sem hver og einn túlkar eftir eigin höfði.

Caché hefur farið sigurför um heiminn, á síðustu Cannes-hátíð var hún tilnefnd til Gullpálmans, fékk verðlaun fyrir bestu leikstjórn, valin besta mynd hátíðarinnar af gagnrýnendum og sérstök verðlaun dómnefndar. Þá vann hún Evrópsku kvikmyndaverðlaunin í mörgum flokkum og var kjörin Besta mynd Evrópu.

Auteuil og Binoche, þessir stórkostlegu leikarar, eru beinlínis óaðfinnanleg og gera, ásamt Haneke, Caché að ógleymanlegri og óvenju frumlegri upplifun.

Sæbjörn Valdimarsson

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica