Fréttir
CACHÉ SÝND Á FRANSKRI HÁTÍÐ
VALIN BESTA MYND EVRÓPU ÁRIÐ 2005
Græna ljósið frumsýnir BESTU MYND EVRÓPU 2005 á Franskri kvikmyndahátið sem fer fram í Háskólabíói 12. - 30. janúar. Aðeins verður um þrjár sýningar að ræða; frumsýningin er 20. janúar og svo er hún sýnd 22. og 26. janúar.
Tveir af vinsælustu leikurum Frakka fara á kostum í þessari mögnuðu og ógleymanlegu mynd, sem hefur farið mikla sigurför undanfarið og rakað til sín meiriháttar verðlaunum um allan heim. Á Cannes hátíðinni í maí var hún tilnefnd til Gullpálmans, fékk verðlaun fyrir bestu leikstjórn, valin besta mynd hátíðarinnar af gagnrýnendum og sérstök verðlaun dómnefndar. Það vor svo á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum stuttu fyrir áramót sem hún kom sá og sigraði; besti karlleikari, besti leikstjóri, besta klipping og BESTA MYND EVRÓPU ÁRIÐ 2005.
Auteuil og Binoche leika George og Anne, hjón sem lifa þægilegu lífi, meðal menntaðrar millistéttar Parísar. En það fer smám saman úr skorðum þegar þeim fer að berast nafnlauar sendingar; spólur af þeim sjálfum, teknar upp fyrir utan heimili þeirra, ásamt ógnvænlegum teikningum. Smám saman verað upptökurnar persónulegri og ljóst er að sendandinn hefur þekkt George í langan tíma. George finnur að ógnin hangir yfir honum og fjölskyldu hans, en þar sem engin leið er að sanna hana, getur lögreglan ekkert viðhafast. Álagið á hjónabandið og fjölskyldulífið er óþólandi og George á engra kosta völ nema reyna komast til botns í málinu á eigin spýtur.

