Fréttir

MÖRGÆSAMYNDIN slær met

ÖNNUR AÐSÓKNARHÆSTA HEIMILDARMYND SÖGUNNAR NÚ ÞEGAR

Hver hefði trúað því að mynd um ferðalag mörgæsa yrði ein vinsælasta mynd ársins? Við, þess vegna keyptum við réttinn að henni . En þær svakalegu vinsældir sem hún er að njóta koma m.a.s. okkur á óvart; hún situr nú í 7. sæti topp 10 í USA og er þegar orðin önnur vinsælasta heimildarmynd allra tíma, á eftir Fahrenheit 9/11.

Myndin kom út vestra 24. júní og var þá aðeins sýnd í fjórum kvikmyndahúsum. Í síðustu viku, eftir níu vikur í sýningu voru kvikmyndahúsin orðin 2000 og heildartekjur hvorki meira né minna en 37.6 milljónir dollarar. Myndin er í 7. sæti á topp 10 og var vikuna á undan í 6. sæti, sem þýðir að hún er að brjóta öll lögmál aðsóknar þar sem vinsælar myndir í USA eiga að byrja stórt og minnka svo hratt viku eftir viku.

Myndin kostaði aðeins 3.5 milljónir dollara, sem telst hræódýrt, þegar önnur eins innkoma er til staðar og er næsta víst að hún á eftir að slá flest hagnaðarmet heims.

Vísindamaðurinn Luc Jacquet sem gerðist leikstjóri í sjónvarpi fyrir nokkrum árum og á heiðurinn af MARCH OF THE PENGUINS segir: "Ég hafði alltaf trú á því að þessi saga hefði alla eiginleika bestu Hollywood myndar: ást, drama, barátta gegn yfirgnæfandi öflum og sjónræna veislu. En ég ímyndaði mér ekki í eina sekúndu að hún yrði svona vinsæl, engin heilbrigð manneskja hefði getað látið sér detta þetta í hug."

Jacquet á hugmyndina að myndinni og til að hrinda henni í framkvæmd þurfti hann að segja skilið við samfélag mannanna í rúmt ár og eyða því með mörgæsunum, í allt að mínus 40 gráðu kulda.

Sérfræðingar spá því að áður en yfir ljúki muni hún hala inn yfir 100 milljónir dollara. Það þýðir þá væntanlega að mörgæsir eru nýjustu "bankable" Hollywood stjörnurnar og hljóta snillingarnir þar að gera endurgerð, framhald, prequel og eftirapanir næstu 10 árin, bíðið bara.

Allt um myndina á IMDB
Opinber heimasíða myndarinnar


GAGNRÝNI:
Roger Ebert
San Francisco Chronicle
Baltimore Sun

TRAILER:
Apple - QuickTime

UM AÐSÓKNINA:
Hollywood Reporter

Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica