Fréttir
JENNY McCARTHY KEMUR Á ÓVART
MTV stjarnan og Playboy kanínan sýnir að hún er frábær grínisti
Jenny McCarthy gerði garðinn frægan á sínum tíma sem Playboy kanína og umsjónarmaður hins mjög svo óvenjulega stefnumótaþáttar SINGLED OUT á MTV. Það var vitað mál að hún væri gullfalleg en hér sannar að hún, að hún er frábær húmoristi sem er tilbúin að gera óspart grín að sjálfri sér. Dirty Love sló í gegn á Sundance fyrr á árinu.
Ótrúlegt en satt, Jenny McCarthy hefur skrifar handrit að virkilega fyndinni mynd; ekki nóg með, hún sýnir magnaða gríntakta í aðalhlutverkinu og gengur ótrúlega langt í að gera grín að sjálfri sér og ljóskuímynd sinni.
Ef þú manst eftir Jenny McCarthy (með hryllingi), frá Singled Out á MTV eða úr BASEketball, þá getur þú geta andað léttar. Hér sýnir hún sér algjörlega nýja hlið og ætli það megi ekki ganga svo langt að segja að þú hafir örugglega aldrei séð gullfallega ljósku hegða sér svona. McCarthy sýnir að hún er ekki bara bráðfyndin, heldur verulega hugrökk og greinilega skítsama hvað öðru fólki finnst, því hér er á ferðinni húmor sem er ekki fyrir alla og fer örugglega fyrir brjóstið á sumum. American Pie myndirnar eru eins og Disney teiknimyndir miða við þessa ræmu.
Myndinni er leikstýrt af eiginmanni McCarthy og hún sló rækilega í gegn á Sundance fyrr á árinu.
SÖGUÞRÁÐURINN:
Þegar Rebekka Johnson (Jenny McCarthy) kemur að kærastanum sínum með annari stelpu í rúminu, ákveður hún að hefna sín með því að fara á stefnumóta-maraþon til þess að reyna að gera svikula Richard brjálaðan af afbrýðisemi. En þetta plan Rebeccu fer ekki alveg eins og áætlað var þegar hún endar á því að fara á nokkur verstu stefnumót í sögu kvenna. Og karla.

