Fréttir
NICK CAVE SKRIFAR HANDRIT
Guy Pearce í aðalhlutverki og hefur aldrei leikið betur!
Snillingurinn og íslandsvinurinn NIck Cave skrifaði handritið og það lokkaði að ótrúlegan hóp af miklum gæðaleikurum, þar á meðal Ray Winstone, Guy Pearce og Emily Watson. Afraksturinn er langbesti vestri sem hefur sést í háa herrans tíð.
Fyrir rúmlega 2 árum skrifaði Nick Cave handrit fyrir Hollywood markaðinn en reynslan var honum svo ömurleg að hann sór þess eið að hann myndi aldrei starfa innan eða fyrir Hollywood maskínuna. Þess í stað sneri hann á heimaslóðir í Ástralíu og skrifaði vestra.
Handritið var það magnað að fjöldi úrvalsleikara kepptist um að fá hlutverk og afraksturinn er THE PROPOSITION. Þetta er sterkur og grípandi (óháður) vestri sem segir frá bræðrum sem eiga í útistöðum hvorn við annan sem og yfirvaldið. Meðal þeirra stjarna sem handritið laðaði að má nefna Guy Pearce, Ray Winstone, Danny Huston, John Hurt, David Wenham og Emily Watson.
Myndin gerist um 1880 og byrjar í brjálæðislegum skotbardaga milli lögreglunnar og hóp útlaga. Charlie Burns (Guy Pearce) og bróðir hans Mikey eru handsamaðir af Kaftein Stainley (Ray Winstone). Þeir, ásamt geðsjúka þriðja bróðurnum, Arthur (Danny Houston) eru eftirlýstir fyrir hryllilega glæpi. Stanley gerir Charlie auðsjáanlega nærri ógerlegt tilboð í von um að binda endi á röð ómanneskjulegra glæpa og að fá blóðið til að hætta að renna. Emily Watson leikur hlutverk eiginkonu Stanley, John Hurt fer með hlutverk veiðimannsins Jellon Lamb og David Wenham leikur Eden Fletcher, valdamikinn landareiganda.
Myndin var frumsýnd á Cannes hátíðinni 2005 og vakti geysilega mikla athygli! Auk þess að hafa skrifað handritið, samdi Cave bróðurpartinn af tónlistinni í myndinni.


0 Athugasemd