Fréttir
HÁTÍÐ Á LEIGUNUM ALLAN ÁGÚST
VINSÆLUSTU MYNDIR IIFF 2005 Á VHS OG DVD
IIFF 2005 varð langstærsta kvikmyndahátíð Íslandssögunnar og laðaði að 34.000 gesti vegna þess að myndirnar sem boðið var upp á voru snilld. Nú eru vinsælustu og athyglisverðustu myndirnar að koma út á videoi allan ágúst og því tækifæri fyrir heimakæra að halda sína eigin kvikmyndahátíð heima í stofu, eða fyrir áhugasama að endurnýja kynni sín við eitthvað af þessum meistaraverkum.
Það muna allir eftir IIFF 2005, langstærstu kvikmyndahátíð Íslandssögunnar, sem sló rækilega í gegn síðastliðinn apríl og laðaði að 34.000 gesti.
Þessi ógnarfjöldi mætti í bíó auðvitað vegna þess að kvikmyndirnar sem boðið var upp á voru upp til hópa stórkostlegar.
Nú geta heimakærir tekið gleði sína því vinsælustu og athyglisverðustu myndir hátíðarinnar eru að koma út allan ágúst. í Hverri viku koma nýjar perlur á leigurnar og áður en mánuðurinn er liðinn munu sex frábærir titlar frá hátíðinni hafa litið dagsins ljós á leigunum og þar með heima hjá þér.
Myndirnar og dagsetningarnar eru:
4. ágúst VERA DRAKE
8. ágúst BEYOND THE SEA
11. ágúst MOTORCYCLE DIARIES
15. ágúst 9 SONGS
15. ágúst A HOLE IN MY HEART
25.ágúst SHAKE HANDS WITH THE DEVIL
Ef þú misstir af einhverjum þessarra mynda í apríl hefurðu tækifæri til að bæta ráð þitt. Ef þú ert hræddur við fólk og ferð aldrei út úr húsi og sást því ekki neina af þessum snilldarmyndum, geturðu tekið þær allar (í lok mánaðarins) og haldið eins manns kvikmyndahátíð heima í stofu.


0 Athugasemd