Fréttir
9 SONGS OG A HOLE IN MY HEART
VÆNTANLEGAR Í ÁGÚST, ÁSAMT ÖÐRUM GÓÐUM FRÁ IIFF 2005
Myndirnar voru sýndar á IIFF með mjög ströngum skilyrðum og jafnvel talað um að ef till vörðuðu sýningar á þeim við lög. Aðeins mátti sýna þær á síðustu kvöldsýningum, með vörð við hurðina og alls ekki setja þær á almennar sýningar eftir hátíðina. Það þótti því ekki líklegt að leyfi fengist til að gefa þær út á DVD, en viti menn, lefið hefur fengist og þær eru væntanlegar á leigurnar í ágúst.
Þær gleðifréttir bárust Græna Ljósinu fyrir stuttu að leyfi fyrir dreifingu á umdeildustu myndum IIFF 2005, 9 Songs og A Hole In My Heart hafi fengist. Eins og flestir muna eftir voru uppi miklar deilur í fjölmiðlum vegna þessa tveggja mynda, þóttu þær of grófar og sagði Kvikmyndaskoðun þær varða við 210. grein hegningarlaga, þar sem bann er lagt við dreifingu og sýningu kláms og gæti hátíðin átt yfir sér þá hættu að sæta sektum eða fangelsi í allt að 6 mánuði!
Sýningarleyfi á myndunum í kvikmyndahúsum var háð mjög ströngum skilyrðum og var þar tekið sérstaklega fram að leyfið næði ekki yfir útgáfu myndanna á myndbandi. (Það mátti ekki einu sinni sýna myndirnar áfram eftir hátíðina.) Það var því mat margra sem lásu dómana að það væri ólíklegt að þessar myndir sæjust nokkurn tíman á myndbandi hérlendis.
Það er því til mikils að hlakka til í ágúst þegar þessar tvær merkilegu myndir koma út. Þeir sem voru svo óheppnir að missa af sýningunum á hátíðinni í vor fá því tækifæri til að sjá og upplifa þessar umdeildu myndir heima í stofu.

