Fréttir

EKKERT HLÉ Á GÓÐUM MYNDUM

ÍSLENSKA HLÉIÐ AFNUMIÐ Á ÖLLUM SÝNINGUM GRÆNA LJÓSSINS

Föstudaginn 5. janúar gefur Græna ljósið út myndina LITTLE MISS SUNSHINE (Litla ungfrú sólskin), sem margir gagnrýnendur hafa kallað "bestu litlu mynd ársins", og verða þá ákveðin tímamót í kvikmyndadreifingu hérlendis, því ákveðið hefur verið að blása nýju lífi í Græna ljósið, eina drefingaraðila landsins sem hefur sérhæft sig í óháðum kvikmyndum frá öllum heimshornum undanfarin ár, með góðum árangri. Meðal fyrri mynda má nefna March of the Penguins, Goodbye Lenin, Super Size Me og City of God. Áherslur og aðferðir við útgáfu og sýningar myndanna verða ólíkar því sem gengur og gerist og má búast við því að kvikmyndamenningin hérlendis verði eftir því fjölbreyttari og fjörugri, allt árið í kring.
Undirbúningur hefur staðið um nokkurt skeið og ljóst er að frá og með 5. janúar verður mikill kraftur í starfsemi Græna ljóssins. Tekist hefur að tryggja sýningarrétt að fjölmörgum spennandi kvikmyndum og viðræður við nokkra stóra erlenda aðila um framtíðarsamstarf gengur vel. Í mörgum tilfellum verður um að ræða kvikmyndir sem Íslendingar hefðu annars aldrei fengið að berja augum, allra síst á hvíta tjaldinu, og á köflum verða gefnar út myndir sem landsmenn hefðu ella sennilega aldrei heyrt um.

Ennfremur hefur nást samkomulag við kvikmyndhús hérlendis um "Gullnu reglur Græna ljóssins" sem munu tryggja það að bíóferð með Græna ljósinu er allt öðruvísi upplifun en stendur til boða annars staðar. Ennfremur er í farvatninu að koma þekktum og spennandi kvikmyndargerðarmönnum til landsins í tengslum við væntanlegar myndir.

Öllu verður þessu hleypt af stokkunum í kringum frumsýninguna 5. janúar, ásamt nýju útliti og nýrri vefsíðu, en nánari upplýsingar um öll atriðin má finna hér að neðan.

::: GULLNU REGLUR GRÆNA LJÓSSINS
Gullnu reglurnar eru þrjár:

1. Ekkert hlé
Myndin sýnd í einum rykk.

2. Minna af auglýsingum
Sýning myndarinnar byrjar fyrr.

3. Engin truflun
Miðasölu lýkur þegar sýning myndar hefst.

Tilgangur Gullnu reglna Græna ljóssins er að auka gæði bíóferðarinnar og tryggja það að gestir njóti kvikmyndarinnar eins og best verður á kosið. Kynningarefni Græna ljóssins, þar með talið daglegar bíóauglýsingar í dagblöðum, munu skera sig úr í útliti, þannig að bíógestir geti á auðveldan hátt áttað sig á því hvar þeir geta gengið að þessum reglum. Gullnu reglurnar gilda um allar sýningar á vegum Græna ljóssins óháð því í hvaða kvikmyndahúsi sýnt er.

::: ÁHERSLUR GRÆNA LJÓSSINS
Markmið Græna ljóssins er að bæta við kvikmyndaflóruna hérlendis, skemmta fólki og stuðla um leið að umræðu um kvikmyndir og innihald þeirra. Verður það gert meðal annars með því að gefa kvikmyndáhugamönnum færi á að komast í tæri við kvikmyndargerðarfólk hvaðænæva að úr heiminum. Sérstök áhersla verður því lögð á að koma góðum gestum til landsins í tengslum við myndirnar og til að mynda bjóða upp á "Spurt og svarað" sýningar þar sem íslenskum bíógestum mun gefast færi á að spyrja höfunda og leikara myndanna spjörunum úr.

Mikil áhersla verður líka lögð á öfluga og lifandi heimasíðu, þar sem fólk mun geta fundið allar upplýsingar um dagskrá Græna ljóssins og væntanlegar kvikmyndir, spjallað um þær við aðra, stungið upp á myndum til að sýna og margt fleira. Þannig verður byggt upp náið samband við íslenska kvikmyndáhugamenn og munu þeir geta haft mikil áhrif á starfsemina. Þeir sem gerast meðlimir á síðunni og skrá sig á póstlistann munu verða partur af kvikmyndasamfélagi Græna ljóssins og bjóðast ótal tilboð og tækifæri sem engum öðrum mun standa til boða. Þeim verður alltaf boðið á sérstakar forsýningar allra mynda Græna ljóssins, hafa algjöran forgang á alla atburði, til að mynda "Spurt og svarað" sýningar o.s.frv.

::: DAGSKRÁIN - NOKKRIR STAÐFESTTIR TITLAR

Stefnt er að því að að frumsýna a.m.k. 1-2 kvikmyndir í mánuði allt árið í kring. Dagskrá næsta árs er óðum að taka á sig mynd og okkur er mikil ánægja að geta til að byrja með staðfest eftirfarandi titla, í stafrófsröð:

THE BRIDGE
CURSE OF THE GOLDEN FLOWER
DEATH OF A PRESIDENT
FOR YOUR CONSIDERATION
INLAND EMPIRE
LAST KING OF SCOTLAND
MARIE ANTOINETTE
NO BODY IS PERFECT
NOTES ON A SCANDAL
PRICELESS
SHORTBUS
S&MAN
VENUS

Allar upplýsingar um myndirnar má finna hér.
 
::: AÐ LOKUM
Einnig má búast við því að Græna ljósið verði mjög duglegt í því að skipuleggja minni þema kvikmyndahátíðir með ca 4-5 myndum og að af og til verði sýndar eldri klassískar myndir.

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Þetta vefsvæði byggir á Eplica