Fréttir
KVIKMYNDAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS 2011
7. - 11. SEPTEMBER Í BÍÓ PARADÍS
Græna ljósið sýnir allar fimm myndirnar sem hafa hlotið tilnefningu til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár, dagana 7. - 11. september í Bíó Paradís.
Á næstu vikum verða myndirnar fimm sýndar á sambærilegum viðburðum í hinum fimm norrænu höfuðborgunum; Kaupmannahöfn, Helsinki, Osló og Stokkhólmi. Í október verður tilkynnt hver sigurvegarinn er og verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn 2. nóvember.
Hin virta sænska leikkona Pernilla August, sem er meðal annars þekkt úr nýju Star Wars myndunum, mun sækja Ísland heim í tilefni af sýningum verðlaunamyndanna í Bíó Paradís, en en hennar fyrsta leikstjórnarverkefni, kvikmyndin Svinalongarna, er einmitt tilnefnd í ár. Verður hún viðstödd opnunarsýningu þeirrar myndar miðvikudaginn 7. september í Bíó Paradís.
Myndirnar fimm eru:
Sannleikurinn um karla - Danmörk
Góði sonurinn - Finnlandi
Brim - Íslandi
Osló, 31. ágúst - Noregur
Svinalångorna - Svíþjóð
Nánar um myndirnar


0 Athugasemd