Fréttir
TÍMAMÓT Í KVIKMYNDAÚTGÁFU
Little Miss Sunshine frumsýnd og Gullnu reglur Græna ljóssins við lýði í fyrsta skipti
Héðan í frá verður reglulegt framboð óháðra mynda allt árið í kring og "Gullnu reglur" Græna ljóssins tryggja gæði bíóferðarinnar.
Í dag frumsýnir Græna ljósið myndina LITTLE MISS SUNSHINE (Litla ungfrú sólskin), sem margir gagnrýnendur hafa kallað "bestu litlu mynd ársins", og verða þá ákveðin tímamót í kvikmyndadreifingu hérlendis, því að nýr kafli hefst með Gullnu reglum Græna ljóssins og reglulegri útgáfu óháðra og listrænni mynda.
::: FRÁBÆR VIÐBRÖGÐ GAGNRÝNENDA OG ÁHORFENDA
Þó að LITTLE MISS SUNSHINE verði ekki frumsýnd fyrr en í kvöld er nú þegar mikil spenna fyrir myndinni. Íslenskir gagnrýnendur fengu að sjá myndina fyrir viku síðan og voru þeir yfir sig hrifnir allir sem einn. Hérna eru dæmi um viðbrögð nokkurra eftir sýninguna:
"Ljúfsár og yndisleg!"
- Sigríður Pétursdóttir, Rás 1
"Ótrúlega fersk, fyndin og notaleg.”
- Sæbjörn Valdimarsson, Mbl
"Bráðfyndin, ljúf og hugguleg gamanmynd sem bæði heillar og snertir við manni."
Tómas Valgeirsson, Kvikmyndir.is
"Ein af þessum myndum sem þig langar til að sjá aftur og aftur og aftur."
- Ásgeir Eyþórsson, Rás 2
Sérstök forsýning var í gær fyrir almenning og ætlaði þar allt um koll að keyra af hlátri og gríðarlega góð stemmning myndaðist í salnum.
::: GULLNU REGLURNAR
Gullnu reglur Græna ljóssins eru:
1. Ekkert hlé
Myndin sýnd í einum rykk.
2. Minna af auglýsingum
Sýning myndarinnar byrjar fyrr.
3. Engin truflun
Miðasölu lýkur þegar sýning myndar hefst.
Myndin er sýnd í Smárabíói og Regnboganum. Allar upplýsingar um myndina hér.

