Fréttir

SPURT OG SVARAÐ MEÐ THOMAS VINTERBERG

Að lokinni sýningu myndarinnar mun hann svara spurningum áhorfenda, undir stjórn Árna Svans Daníelssonar guðfræðings og meðlims rannsóknarhópsins Deus ex cinema.

Submarino er saga tveggja aðskildra drengja, sem bera merki dapurlegrar æsku. Þeir voru aðskildir á unga aldri þegar sorglegur atburður sundraði fjölskyldunni. Þegar myndin hefst er líf Nick gegnsýrt  af áfengisneyslu og ofbeldi, en bróðir hans er einstæður faðir sem reynist erfitt að veita syni sínum betra líf því að hann er fíkill. Leiðir þeirra skarast og það kemur til óumflýjanlegs uppgjörs.
 
Í Submarino snýr Thomas Vinterberg aftur til þeirrar einföldu kvikmyndagerðar sem einkenndi fyrstu verk hans eins og  Veisluna (Festen) sem hann varð frægur fyrir. Leikstjórinn var heillaður af því sterka raunsæi sem kemur fram í skáldsögu Jonas T. Bengtsson um sektarkennd foreldra og sökkti sér í reynsluheim aðalpersónanna tveggja, Nick (Jakob Cedergren) sem er félagslega einangraður, og bróður hans (Peter Plaugborg), sem er fíkniefnaneytandi og faðir lítils drengs sem heitir Martin. Til að kynnast miskunnarlausu umhverfi persónanna eins vel og mögulegt var, sökkti leikstjórinn sér niður í heim verkafólks í norðvesturhluta Kaupmannahafnar og til þess að afla sér þekkingar á lífi fíkilsins, föður Martins, leitaði hann til gamals skólafélaga  sem hefur verið heróínfíkill í 20 ár.
 
Fjölmargir leikarar og starfsmanna við myndina, eins og kvikmyndatökumaðurinn Charlotte Bruus Christensen og Tobias Lindholm handritshöfundur, voru að vinna við kvikmynd í fyrsta sinn og ber hún þess merki í ákafa og orku sem minnti Vinterberg á frumraun sína. "Ég hafði saknað ákafans frá því ég gerði útskriftarmynd mína úr danska kvikmyndaskólanum, fyrir tilkomu Dogma", sagði hann.
 
Submarino var frumsýnd í opinberri samkeppni á Berlínarhátíðinni fyrr á þessu ári. Hún hefur verið seld til dreifingar í kvikmyndahús í fjölmörgum löndum, m.a. Frakklandi, Benelux löndunum, Spáni, Ítalíu og Japan. Hún var frumsýnd í Danmörku í mars síðastliðnum og hlaut mjög góðar viðtökur.
 
Græna ljósið sýnir í samvinnu við Bíó Paradís allar þær fimm myndir sem tilnefndar voru til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs, ásamt fimm eldri myndum sömu leikstjóra. Sýningarnar standa frá 29. október til 4. nóvember.

0 Athugasemd

Skrifa athugasemd



(Til að fyrirbyggja ruslpóst)

Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig

Væntanlegt



Þetta vefsvæði byggir á Eplica