Fréttir
MIKILL ÁHUGI Á GBÍ ERLENDIS
Það er ekki bara hér á Íslandi sem kvikmyndin Guð blessi Ísland hefur vakið heilmikla athygli.
Gengið hefur verið frá útgáfu hennar á öllum Norðurlöndunum og í Þýskalandi og nú hafa flest lönd Evrópu einnig sýnt áhuga.
Auk þess eru virtustu kvikmyndahátíðir heims farnar að setja sig í samband við aðstandendur myndarinnar og má telja líklegt að tíðinda sé að vænta innan skamms varðandi framhaldið.


1 Athugasemd
Doddi skrifar :
í upphafi var Græna Ljósið með yfirlýsingar þess efnis að engar auglýsingar ættu að trufla sýningu bíómynda á þeirra vegum, myndin ætti að hefjast á auglýstum tíma og svo ætti að loka salnum. Einnig áttu engin hlé að vera á sýningum á vegum Græna Ljóssins.
Ég fór á GBÍ um daginn og ekkert af þessu stóðst. Myndin var auglýst 17:45 en hófst síðan ekki fyrr en um 18:10 vegna auglýsinga. Síðan var hlé á miðri myndinn fyrir þær 10 hræður sem voru í salnum?? Hvaða rugl er í gangi?
13.10.2009, kl. 12:40 | #