Fréttir
MIKILL ÁHUGI Á GBÍ ERLENDIS
Það er ekki bara hér á Íslandi sem kvikmyndin Guð blessi Ísland hefur vakið heilmikla athygli.
Gengið hefur verið frá útgáfu hennar á öllum Norðurlöndunum og í Þýskalandi og nú hafa flest lönd Evrópu einnig sýnt áhuga.
Auk þess eru virtustu kvikmyndahátíðir heims farnar að setja sig í samband við aðstandendur myndarinnar og má telja líklegt að tíðinda sé að vænta innan skamms varðandi framhaldið.

