Fréttir

BÍÓHLAUP KYNNT TIL SÖGUNNAR

Með útgáfu Tyson verður kynnt til sögunnar nýtt konsept sem kallast BÍÓHLAUP. Í Bíóhlaupi Græna ljóssins er viðkomandi mynd aðeins sýnd í 14 daga og verða áhugAsamir því að hafa hraðar hendur vilji þeir sjá viðkomandi kvikmyndir í bíói. Myndirnar verða í flestum tilfellum sýndar á digital myndvarpa og með íslenskum texta.

Að auki má reikna með því að kvikmyndirnar í Bíóhlaupi Græna ljóssins verða ekki auglýstar með hefðbundnum aðferðum, sem sagt í sjónvarpi, útvarpi eða blöðum. Þess í stað verður aðallega treyst á póstlista Græna ljóssins og að vera í beinu sambandi við vini Græna ljóssins í gegnum Fésbókina.

Þessu má svo við bæta að það tilkynnist hér með að Gullnu reglur Græna ljóssins verða lagðar af frá og með frumsýningu Tyson. Aðalreglan þar hefur verið að allar myndir eru sýndar án hlés. Þessi tilraun hefur staðið yfir í rúmlega 2 ár og gengið sæmilega, en við núverandi aðstæður er ekki mögulegt að halda henni áfram. Um leið lækkar miðaverð Græna ljóssins og mun héðan í frá kosta það sama inn á myndir frá Græna ljósinu og aðrar almennar kvikmyndir hérlendis.

Með þessum breytingum og Bíóhlaupinu er verið að tryggja áframhaldandi rekstur Græna ljóssins og að blómleg útáfa þess á óháðum gæðamyndum frá öllum heimshornum haldi ótrauð áfram .



Umræður Gallerý

Til baka, Senda grein, Prenta grein

 

Bookmark and Share
Bookmark and Share

Í bíó



Póstlisti Græna ljóssins

Það borgar sig að skrá sig



Þetta vefsvæði byggir á Eplica